Andvari - 01.01.1952, Síða 48
44
Þorkell Jóhannesson
ANDVARl
Skinnaverkun lagðist niður 1758 vegna eklu á hráefni. Hinsvegar
hófst brennisteinshreinsun í Húsavík 1761. Gekk brennisteins-
verkunin einna bezt af fyrirtækjum stofnananna. Ullarvinnslan,
sem mest áherzla var á lögð, átti í vök að verjast og olli því bæði
hömlur þær, er á verzluninni voru, og svo hráefnaskortur vegna
fjársýkinnar. Árið 1764 voru iðnaðarstofnanirnar sameinaðar
rekstri Almenna verzlunarfélagsins, sem afrækti þær mjög. Urðu
af þeim sökum langvinn málaferli milli félagsins og Skúla Magnús-
sonar, er lauk með sættargerð 1779. Urðu stofnanirnar þá konungs-
eign, en eigi kvað mikið að rekstri þeirra síðan og loks voru sein-
ustu reitur þeirra seldar, ásamt öðrum eignum konungsverzlunar-
innar síðari, er einokuninni var aflétt 1787. Fjárhagslega höfðu
þær lítinn árangur borið. En hinsvegar höfðu þær eflaust átt
þátt í því að kynna þjóðinni ný og betri verkfæri og kennt henni
að nota þau. Þannig höfðu þær að vísu náð tilgangi sínum í einu
mikilvægu atriði.
En þó að innréttingarnar yrði ekki sú lyftistöng fyrir atvinnu-
vegi þjóðarinnar í öllum greinum, sem Skúli Magnússon vildi
og margir gerðu sér efalaust miklar vonir um í upphafi, má ekki
gleyma því, að stofnun þeirra markar tímamót í afstöðu ríkis-
stjómarinnar til íslandsmála. f upphafi þessa rnáls var á það bent,
hversu hlífðarlaus og áköf barátta konungsvaldsins til fjárafla og
yfirdrottnunar hefði leikið þjóðina. Rangsnúin fjármálastefna og
kærulaus valdstjóm leiða til öngþveitis um hagi landsmanna um
aldamótin 1700. Úr þ ví tekur ríkisstjórnin að vísu nokkuð að
ranka við sér, en með stofnun innréttinganna er lagt inn á nýjar
brautir. Stjórnmála- og atvinnusaga íslands frarn til þess að slakað
er á einokuninni ber hinni nýju stjómarstefnu vitni, þótt ýmis-
konar óhöpp og áföll yrði því valdandi, að minna vannst á en
til var stefnt. Mestu olli, að hér var byrjað á öfugum enda. Hér
sönnuðust ummæli Skúla Magnússonar frá 1770, er hann minnt-
ist afstöðu sinnar til stofnunar innréttinganna á Alþingi 1751:
Að hafa slíkar framkvæmdir með höndum, undirorpnar taxta og
einokun, væri að vinna gegn allri skynsemi. Verzlunareinokunin