Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1952, Page 54

Andvari - 01.01.1952, Page 54
50 Sveinn Bergsveinsson andvari „leysa af hólmi hefðbundna Ijóðagerð" og um leið auðvitað að hrella heiðarlega borgara með nýstárlegum og lítt skiljanlegum bún- ingi? Að vísu komu ekki aðalfulltrúar hennar fram á stúdenta- fundinum, sumpart vegna fjarveru, svo að fundarmönnum gafst ekki færi á að heyra af vörum þeirra sjálfra, hvað þeim lægi á hjarta. Þó tel ég vafamál, að ungu skáldunum hefði tekizt framar formælendum sínum að skýra tilgang sinn, og skal það í sjálfu sér ekki lastað, því að sitt hvað er að yrkja og útskýra. Nokkrum andmælingum skildist, að einkenni atómljóðanna, sem oftast væru nefnd svo, væri hinn órímaði búningur. Það er að sjálf- sögðu misskilningur. Tómas Guðmundsson skáld komst nær hinu rétta, er hann taldi, að ungu skáldin leystu upp alkunn orðasam- bönd og röðuðu orðunum saman á nýjan leik á óvenjulegan hátt. Við það fær innihald ljóðsins torræðan búning. Guðmund- ur G. Hagalín rithöfundur er inni á sömu braut, er hann taldi í viðtali í Alþýðublaðinu á síðastliðnu vori aðaleinkenni atómljóð- anna vera hið irratiónala eða óræða form. Ég vildi þó heldur kalla það margræðan búning, svo sem enn mun sagt verða. Þrátt fyrir uppgjöf formælendanna að skýra stefnuna, er það þó svo, að hin umrædda nútízka í Ijóðagerð er engin tilviljun og er grein af liststefnu, sem hafði sitthvað að segja, þegar hún kom fram eftir heimsstyrjöldina fyrri sem og í endurfæddri mynd í byrjun síðari heimsstyrjaldar. Annað mál er það, hversu haldgóð sú stefna er orðin, er hana rekur á fjörurnar hér heima. Menn hafa hampað nafni ensk-ameríska skáldsins og gagnrýnandans, Thomas Stearns Eliot, í sambandi við tilraunir ungskáldanna íslenzku. Því er að sjálfsögðu hægt að halda fram í gamni, að þau hafi orðið fyrir djúpum áhrifum af Eliot. En í alvöru er tæplega hægt að gera ráð fyrir að nemendur, sem gefast upp við gagnfræða- nám, séu andlegir sálufélagar jafn hámenntaðs manns og Eliot, sem numið hefur heimspeki, klassiskar og austurlenzkar bók- menntir við háskóla eins og Harvard, Sorbonne og Oxford, auk þess sem hann er torræður í líkingum sínum og túlkun. Til að skilja hina umdeildu ljóðlist og tilorðningu hennar vil ég

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.