Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1952, Page 62

Andvari - 01.01.1952, Page 62
58 Sveinn Bergsveinsson ANDVARI markmið í sjálfu sér, þau hafa fjarlægzt hið mannlega vegna stærðfræðilegra, myndrænna og hljómrænna tilrauna í hugmynda- túlkun ljóðsins. Táknmyndir og orðaval sé orðið svipað hjá þeirn flestum og orð Tegnérs séu enn í gildi: óljóst mál speglar óljósa hugsun. Þessi gagnrýni er í aðalatriðum ekki ólík þeirri, sem komið hefur fram gegn íslenzku skáldunum. Munurinn er sá, að sænsku skáldin hafa svarað ótæpt fyrir sig og rökræða eins og heimspekingar, hvað fyrir þeim vakir. Og ekki vantar ]rað, að þeir viti eldci hvað þeir eru að fara og hvað þeir ætla sér að túlka, og svara gagnrýninni eins og „vér einum vitum“ með orðum Goethes: Ich schreibe nicht Euch zu gefallen, Ihr sollt was lernen. Öllu slappari eru rök íslenzku skáldanna: hið hefðbundna ljóð- form er loksins dautt (sænskur skáldbróðir skrifaði 1946: „En sak ár dock klar, för at fálla en sista dom över traditionell lyrik: förbi ár versböckemas tid“). Sænsku skáldspekingamir segja: orð Tegnérs, óljóst sagt er óljóst hugsað, eiga ekki við um skáldskap vorn. Sá heimur sem við lifum í er fullur ósamræmis, lýsing á honum verður því að vera sundurleit og ósamhljóma, svo að fullnægt sé kröfunni um fyllsta samræmi milli inntaks ljóðsins og forms! Hugsunin virðist því vera, að menn eigi að beita ósam- ræmi í túlkun til að ná samræmdu formi! Þó að þetta komi nokkuð ankannanlega út, þá er meginhugsunin sú, að táknmynd- irnar verði að vera altækar og hugmyndatengslin óvenjuleg og tilviljunarkennd (kenndarraunsæi) til að lýsa heimi, sem er sjálfum sér sundurþykkur og rambar á heljar þröm. Allur þessi útreikningur minnir á klassiska ró, en er um leið kominn æði langt frá einstaklingstjáningu stefna eins og expressjónisma og rómantík. Leitazt er við að gefa orðunum sem víðtækasta og margræðasta merkingu, svo að líkingin verði sem altækust, hver getur þá lagt í táknmálið þá merkingu sem honum sýnist. Það á ekki að raska gildi ljóðsins. Um leið nálgast Ijóðið hið háspeki-

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.