Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1952, Page 71

Andvari - 01.01.1952, Page 71
ANDVARI Sveinbjörn Egilsson 67 og þá kennslu annaðist oftast stærðfræðingurinn Björn Gunn- laugsson. íslenzk fomrit vom fá eða engin lesin, nema helzt í tómstundum á svefnloftum, en Eddukvæði höfð nokkuð um hönd og höfðu greinileg áhrif — líklega einkum eftir að útgáfa Rasks kom — og síðan Snorra-Edda, eftir að Sveinbjörn gaf hana út. Hins vegar lögðu þeir Sveinbjörn og Hallgrímur Scheving mikla áherzlu á íslenzka þýðingu hinna fornu, klassisku rita, og þar lærðu margir mál að vanda. Friðsamleg fræða- og skólamennska Sveinbjarnar var aldrei rofin alvarlega á Bessastöðum, og aldrei er getið um erfiðleika hans í umgengni við nemendur, þó að stundum þætti hann ómannblendinn út í frá, fyrr en pereatið kom fyrir í Reykjavik 1850. Það er einkennilegt öfugstreymi, að þetta pereatsmál skuli hafa orðið það atvik úr ævi Sveinbjarnar Egilssonar, sem hvað mest hefur festst í minni manna. Atvik voru þau, að rektor og lærisveinar deildu um áfengisneyzlu og bindindi, og vildi rektor halda drykkjuskap skólapilta í skefjum með því að skylda þá til þess að vera í bindindisfélagi skólans, og hafði um þetta allhörð orð, þótt margt orð harðara megi æskulýður nú urn stundir heyra um sjálfan sig. Skólapiltar svöruðu með því að ganga fylktu liði heim til rektors og hrópa pereat — niður með hann. Varð síðan úr þessu málavafstur og brottrekstrar úr skólanum og flokka- dráttur í bænum, en yfirstjórn skólans erlendis felldi síðan úr- skurð algerlega með rektor. Fyrsta ár mitt í skóla heyrði ég minn gamla og æruverða rektor Steingrím Thorsteinsson segja föður rnínum nákvæmlega frá pereatinu, en Steingrímur var þá í skóla og þátttakandi. Því miður hafði ég þá ekki sinnu á því að skrifa þetta hjá mér, en mér virðist sumt í hans frásögn hafa verið nakvæmara og öðruvísi en það, sem skrifað hefur verið um þann atburð. Hann var í sjálfu sér skiljanlegt upphlaup ungra nranna, ómerkilegt skólasprell, og ástæðuh'tið að setja hann alvar- lega í samband við evrópískar frelsishreyfingar þessara ára, þó að þeirra gætti á öðrunr sviðum; en inn í málið ófst bæjarrígur °g ovild fyrirmanna. Sveinbjörn gerði ekki annað en skyldu sína

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.