Andvari - 01.01.1952, Page 79
ANDVARI
Vísindi og styrjaldir
75
vísindin hafa jöfnum höndum gert styrjaldirnar átakanlegri og
sögulegri og fjarlægðirnar í heiminum minni og minni, og fyrir
bragðið sjáurn vér betur og betur fánýti og andstyggð styrjalda.
En — gæti einhver sagt — vissulega ialla fleiri í „vísindaleg-
um“ nútíma styrjöldum en átti sér stað á þeim dögum, er menn
lömdu hvorir aðra með kylfum eða ráku hvorir aðra í gegn með
spjótum. Rétt er það að höfðatölunni til, en rangt, þegar miðað
er við fjölda þeirra, sem berjast; það er sannað, að eftir því sem
lengra hefur liðið, hefur mannfall í styrjöldum stöðugt farið þverr-
andi í hlutfalli við tölu þeirra, sem tekið hafa þátt í þeim.
Arið 1800 spáði Robert Fulton því, að sá tími mundi koma,
er íbúar Englands mundu komast upp í 10 milljónir. Nú eru
þeir orðnir mörgum sinnum fleiri, og rými fyrir marga í viðbót.
Þetta rými er til vegna þess eins, að vísindin hafa sýnt, hvernig
a að fara að auka matvæli og aðrar lífsnauðsynjar, og þannig rutt
slagbröndum úr vegi fólksfjölgunarinnar. Meira en tveir af hverj-
um þrem íbúum í menningarlöndum heims eiga vísindunum að
þakka tilveru sína, því að án nútíma véltækni væri ekki unnt að
sjá þeim fyrir lífsnauðsynjum.
Nú er talið að tvö þúsund milljónir manna séu á lífi í heim-
tnum. Af þeim deyja yfir 30 milljónir árlega á friðartímum. Ný-
tízku hermaður á ekki beinlínis sök á fyllilega einum af hundraði
í viðbót við þá aánartölu. Nú er meðalaldur fólks í Norðurálfu
°g Vesturheimi um það bil 60 ár, en var ekki nema 27 ár fyrir
nokkrum öldum.
A Englandi urðu sprengjur að meðaltali 5000 manns að bana
a mánuði síðara hluta ársins 1940. Þessi tala verður nokkru fyrir-
ferðarminni í huga manns, þegar þess er gætt, að á venjulegum
nðartímum deyja þar meira en tíu sinnum fleiri á sama tíma.
Vætti þannig gera ráð fyrir, að sprengjuregnið hefði bætt svo
sem tíu af hundraði við dánartöluna. En hagfræðiskýrslur sýna
samt, að þessu fór fjarri, því að á 12 mánaða tímabilinu, frá 1.
júlí 1940 til 1. júlí 1941, lækkaði dánartalan í Bretlandi niður
yúi meðaltal hennar á friðartímum. Minni bílaakstur, takmark-