Andvari - 01.01.1952, Qupperneq 82
ANDVARI
Móðurvernd og föður-
handleiðsla.
Eftir Símon Jóh. Ágústsson.
Eleimilið annast venjulega hið fyrsta uppelcli barnsins eða
þar til það fer að ganga í skóla. Til þess tíma, eða til 6—7 ára
aldurs, er heimilisuppeldið hið eina reglulega uppeldi, sem börnin
fá, en auk þess verða þau fyrir margvíslegum áhrifum, góðum
og illum, frá utanheimilismönnum eða „umhverfinu“. Þetta fyrsta
uppeldi barnsins er svo mikilvægt, að heimilið má með réttu
kalla hornstein allrar menningar. I fjölskyldunni er barnið vanið
og siðað. Þar eru því innrættar hinar fyrstu siðgæðis- og trúar-
hugmyndir; þar er því kenndur greinarmunur á góðu og illu og
settar reglur um hegðun og framferði. Fjölskyldan getur betur
en nokkurt annað mannfélag liaft menntandi áhrif, sem taka
til persónuleika barnsins, sakir ástar þeirrar, er tengir þessi skyld-
menni, og sakir þess, hve uppeldissambandið milli foreldra og
barna stendur lengi og órofið. Foreldrarnir hafa betri aðstöðu
en nokkur annar uppalandi til að þekkja bamið og haga upp'
eldinu eftir eðlisfari hvers eins. Fjölskylduuppeldið hefur þvi
djúp og óafmáanleg áhrif á skapgerð og siðferði barnsins: Þær
hugsjónir, sem oss voru innrættar í bernsku og vér fundum, ac5
foreldrar vorir og vandamenn virtu mest, leita oftast upp hja
oss seinna í lífinu. Vér leggjum með réttu mikið upp úr þvi>
að ungur maður eða ung stúlka sé af góðu fólki. Astæðan til
þess er ekki einungis sú, að vér vitum, að vitsmunir og
eiginleikar ganga í ættir, heldur einnig hin, að vér vitum, við
hvers konar menningu persónuleiki mannsins hefur mótazt.