Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1952, Side 83

Andvari - 01.01.1952, Side 83
andvam Móðurvernd og föðurhandleiSsla 79 I. Ég vil þá fyrst ræða samband móður og barns og þá eink- um afleiðingar þess, ef það er ekki með æskilegu móti. Ótvírætt hefur verið sýnt fram á, að geðheilsu ungbams, sem nýtur ekki umhyggju móður eða einhvers, sem gengur því í móður stað, er stofnað í voða. Mörg dæmi hafa verið fundin þess, að börn hafa hætt að taka framfömm, ef þeim var ekki sýnd móðurleg blíða, enda þótt þau væru í svokölluðum fyrirmyndar-uppeldis- stofnunum. Þótt hreinlæti og líkamleg umhyggja séu eins og bezt er á ltosið, eru börn vansæl og þrífast stundum ekki, ef þau skortir hlýju og gott atlæti. Almenningur er víða í þeirri trú, að litlu skipti, hvernig uppeldi barnsins er fyrstu dagana, mánuðina eða jafnvel fyrsta æviárið, af því að það muni ekkert eftir því, sem þá ber fyrir það, öll reynsla þess sé gleymd og gralin. En þetta er háskalegur misskilningur. Það er að vísu rett, að ungbarnið gleymir reynslu sinni, en áhrif reynslunnar sitja eftir og marka, ef svo má segja, frumviðhorf þess til lífsins. Og þessu viðhorfi, sem myndast með barninu, ef til vill á fyrstu dögum og vikum ævinnar, er ákaflega örðugt að breyta síðar, eirunitt af því, að það er barninu ómeðvitað, runnið því í merg °g blóð. Margt það, sem venjulega er talið meðfætt, liggja í eðlisfari barns, er það í raun og veru eklci, heldur á rót sína að rekja til uppeldis þess í frumbernsku. Mannsbamið fæðist ósjálfbjarga og getur ekki haldið lífi án tnikillar umönnunar annarra. Þessi umsjá fellur venjulega að mestu eða öllu leyti í hlut móðurinnar. Hún vakir yfir öllurn þörfum barnsins, hún fæðir það ekki eingöngu í heiminn, heldur leiðir hún það einnig út í heiminn og kemur því fyrst til þroska. hessi sívakandi umönnun, sem krefst að því er virðist mikillar lórnfýsi, er samt, samkvæmt ráðstöfun náttúrunnar, öllum and- ega heilbrigðum mæðrum ljúft starf. Móðurástin er þarna að v°rki, en hún er eðlislæg. Með því að sinna nýfæddu barni sínu, svalar móðirin sterkustu hvöt mannseðlisins, þeirri, að halda við tegundinni. Það er því hverri andlega heilbrigðri móður eðlilegt c'h láta barninu í té ástúð og blíðuatlot. 6

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.