Andvari - 01.01.1952, Side 84
80
Símon Jóh. Ágústsson
ANDVAHI
Þó eru á þessu allmargar undantelcningar. Móðurhvötin er
svo sljó með sumum, að barnið er þeim óvelkominn gestur. Öll
umönnun barnsins kostar þær „fórn“, svalar ekki djúpri eðlis-
þrá þeirra og veitir þeim elcki tækifæri til að njóta þess þáttar í
eðli þeirra, sem veitir þeim meiri lífsfyllingu en flest annað.
Vér sjáum hliðstæðu þessa meðal dýra. Allr fjármenn vita, að
ær eru misgóðar mæður. Vandkvæði eru á því, að fá sumar ær
til að taka lömbunum. Aðrar eru gálur, kærulausar um afkvæmi
sín og drepa lömbin undan sér, nema böfð sé á þeim sérstök gát.
Ef baminu er ekki þegar frá fæðingu sýnd nákvæmni og
ástúð, tengist það ekki öðmm mönnum og umhverfinu á réttan
hátt. Með því myndast djúpstætt vantraust, öryggisleysiskennd,
sem gerir það kvíðið og vansælt. Þetta djúpstæða vantraust getur
svo sett svip sinn á sálarlíf bamsins úr því, a. m. k. er rnjög
erfitt að uppræta það síðar. Geðheilsa og allur andlegur þroski
barnsins er mjög undir því kominn, að það læri að treysta móður
sinni, en það verður á þann hátt, að bún sér baminu fyrir öllum
þörfum þess á meðan það er ósjálfbjarga, gælir við það og er
ávallt til staðar til þess að sinna því fljótt og vel. Því er sá ósiður
báskalegur að skilja ungbörn eftir ein, án þess að nokkur geti
fylgst með líðan þeirra og sinnt þeim, svo og að láta börn gráta
tímunum saman af hungri og vanlíðan, án þess að taka þau upp,
láta vel að þeim og gefa þeim að drekka. Víst þykir, að hæfileg
blíðuatlot glæði bæði andlegan og líkamlegan þroslca barna. Við
bað, strokur og gælur örvast blóðrás, andardráttur og önnur
líffærastörf. Hið sama gildir um dýr. Kötturinn t. d. lcarar kettl-
ingana við fæðingu og sleikir þá lengi vel mörgum sinnum á
dag. Kettlingar, sem aldir eru upp með mönnum og eru ekki
sleiktir, þjást oft af ýmiss konar truflunum á líffærastörfum.
Hið sama hefur verið athugað um mannapa.1)
Nú um skeið hefur sá siður töluvert rutt sér til rúms, sjálf'
sagt eklci síður meðal menntaðri stéttanna, að bezt sé að láta
1) M. A. Ribhle: The Rights of Infants, N. Y. 1943, bls. 36—37.