Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1952, Síða 84

Andvari - 01.01.1952, Síða 84
80 Símon Jóh. Ágústsson ANDVAHI Þó eru á þessu allmargar undantelcningar. Móðurhvötin er svo sljó með sumum, að barnið er þeim óvelkominn gestur. Öll umönnun barnsins kostar þær „fórn“, svalar ekki djúpri eðlis- þrá þeirra og veitir þeim elcki tækifæri til að njóta þess þáttar í eðli þeirra, sem veitir þeim meiri lífsfyllingu en flest annað. Vér sjáum hliðstæðu þessa meðal dýra. Allr fjármenn vita, að ær eru misgóðar mæður. Vandkvæði eru á því, að fá sumar ær til að taka lömbunum. Aðrar eru gálur, kærulausar um afkvæmi sín og drepa lömbin undan sér, nema böfð sé á þeim sérstök gát. Ef baminu er ekki þegar frá fæðingu sýnd nákvæmni og ástúð, tengist það ekki öðmm mönnum og umhverfinu á réttan hátt. Með því myndast djúpstætt vantraust, öryggisleysiskennd, sem gerir það kvíðið og vansælt. Þetta djúpstæða vantraust getur svo sett svip sinn á sálarlíf bamsins úr því, a. m. k. er rnjög erfitt að uppræta það síðar. Geðheilsa og allur andlegur þroski barnsins er mjög undir því kominn, að það læri að treysta móður sinni, en það verður á þann hátt, að bún sér baminu fyrir öllum þörfum þess á meðan það er ósjálfbjarga, gælir við það og er ávallt til staðar til þess að sinna því fljótt og vel. Því er sá ósiður báskalegur að skilja ungbörn eftir ein, án þess að nokkur geti fylgst með líðan þeirra og sinnt þeim, svo og að láta börn gráta tímunum saman af hungri og vanlíðan, án þess að taka þau upp, láta vel að þeim og gefa þeim að drekka. Víst þykir, að hæfileg blíðuatlot glæði bæði andlegan og líkamlegan þroslca barna. Við bað, strokur og gælur örvast blóðrás, andardráttur og önnur líffærastörf. Hið sama gildir um dýr. Kötturinn t. d. lcarar kettl- ingana við fæðingu og sleikir þá lengi vel mörgum sinnum á dag. Kettlingar, sem aldir eru upp með mönnum og eru ekki sleiktir, þjást oft af ýmiss konar truflunum á líffærastörfum. Hið sama hefur verið athugað um mannapa.1) Nú um skeið hefur sá siður töluvert rutt sér til rúms, sjálf' sagt eklci síður meðal menntaðri stéttanna, að bezt sé að láta 1) M. A. Ribhle: The Rights of Infants, N. Y. 1943, bls. 36—37.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.