Andvari - 01.01.1952, Page 90
86
Símon Jóh. Ágústsson
ANDVARI
nánustu ættingja barnsins. Það er sennilegt, að barnið líkist þeim
að gáfum; þó er hvergi nærri öruggt að treysta því.
I þessu sambandi vil ég víkja nokkuð að óskilgetnum börnum
og hjónaskilnaðarbörnum. Meira en 4. hvert bam er fætt utan
hjónabands hér á landi, og er mér nær að halda, að það muni
vera met með siðmenntaðri þjóð. En vér skulum samt ekki ganga
að því vísu, eftir staðtölunum, að vér séum allra þjóða verst.
Fjöldamörg óskilgetin börn hér á landi búa við sama öryggi og
uppeldiskjör og börn, sem fædd eru í hjónabandi. Foreldrarnir
búa saman og samband þeirra er engu ótraustara en þótt þau
væru gift. Margir hér koma því ekki í verk að ganga í hjóna-
band, fyrr en þeir hafa átt með konunni eitt barn eða fleiri.
Um þetta fáum vér enga vitneskju af staðtölunum. Þessi böm
eiga því samstöðu með skilgetnum börnum, þar sem þau búa við
sömu uppeldiskjör og þau. Hjónaskilnaðir eru aftur á móti fá-
tíðir hér, miðað t. d. við Danmörku. Þar endar um 5. eða 6.
hvert hjónaband í skilnaði, en hér hvert 12. Þótt Danir eigi
færri börn óskilgetin en íslendingar (hlutfallið er um 12% á
móti um 27%), eiga þeir mun fleiri hjónaskilnaðarbörn. Ef ógift
stúlka af borgarafólki þar verður vanfær, leggur hún allt kapp
á, vegna almenningsálitsins, að fá manninn til að kvænast sér,
ganga í sýndarhjónaband, þótt ekki sé nema nokkra mánuði,
svo að ekki falli sá blettur á hana að eignast barn í kausaleik. Ef
barnið er fætt í hjónabandi, bjargar hún heiðri sínum á yfir-
borðinu, en eftir skilnaðinn stendur hún í svo til sömu sporum
og ógift móðir. Hún baslast áfram með bam sitt, en hefur ein-
ungis meiri möguleika á að gifta sig aftur. Hér á landi aftur
á móti þykir það ekki ýkjamikill ljóður á ráði stúlku, þótt hún
hafi átt barn utan hjónabands, og hefur hún litlu rninni mögu-
leika til giftingar en fráskilin kona eða ekkja með barn. Þegar
á allt er litið og tekið tillit til þjóðfélagsaðstæðna og hugsunar-
háttar, er alveg óvíst, hvort hlutfallslega fleiri börn hér á landi
fara á mis við eðlilegt fjölskylduuppeldi en í Danmörku.
En í öllum löndum og hér einnig eru mæður, sem eru lítt