Andvari - 01.01.1952, Síða 92
88
Símon Jóh. Ágústsson
ANDVARI
ráðstafanir gagnvart baminu eru mjög einkennandi fyrir þær.
Slík móðir kemur t. d. barni sínu á vöggustofu, en tekur það svo
aftur til sín. Að nokkmm tíma liðnum gefst hún upp á því að
lrafa barnið, kemur því fyrir í öðmm stað, en til bráðabirgða,
tekur það svo til sín á ný nokkum tíma — og svo koll af kolli.
Barnið er því á flækingi, þótt það sé á vegum móður sinnar
og eigi að heita í umsjá hennar. Eins og þeir vita, sem starfað
bafa að barnavemdarmálum, er erfitt verk að hjálpa og leiðbeina
slíkum mæðrum. Verður hér að bafa hóf á tilfinningasemi eða
láta hana a. m. k. ekki eina ráða. Menn verða að gera sér þess
grein, hvað baminu og móðurinni er raunverulega fyrir beztu.
Sumum þessara mæðra má með góðri aðstoð koma á réttan
kjöl, en börnum annarra verður að koma í framtíðarfóstur og
svipta þær valdi til þess að flækja bömunum fram og aftur.
II. Eg bef bingað til rætt um þátt móðurinnar í uppeldinu.
Nú mun ég víkja nokkuð að hlutdeild föðurins. Telja má, að vel
sé stofnað til hjónabands, þegar maður og kona elska og virða
hvort annað og eru reiðubúin að taka sameiginlega öllu, sem
að höndum ber. En jafnvel þótt þannig sé til hjónabands stofn-
að, getur það seinna farið út um þúfur. í góðu hjónabandi eru
maður og kona samhent, þ. e. sammála um öll þau atriði, sem
verulegu máli skipta, og þá ekki sízt uppeldi barnanna. Tengslin
milli móður og bams eru venjulega miklu eðlislægari og frum-
rænni en tengslin milli föður og barns. Þáttur móðurinnar í upp-
eldinu hefst fyrr en þáttur föðurins. Ég hef lagt ríka áherzlu
á, að barnið þarfnast framar öllu öryggis og ástar. Aðeins með
því móti er grundvöllurinn rétt lagður að frekari þroska þess.
En til þess að öryggiskennd myndist með barninu, þarf móðirin
sjálf að finna sig örugga. Þetta öryggi veitir góður eiginmaður
henni í ríkum mæli. Konan þráir mann, sem bún getur treyst.
Aðeins með því móti er velferð og hamingja hennar og bamanna
borgið. Þetta má líka orða á þá lund, að móðirin sjái beint um
öryggi ungbamsins, en faðirinn um öryggi allrar fjölskyldunnar