Andvari - 01.01.1952, Side 95
ANDVARI
Móðurvemd og föðurhandleiðsla
91
væri. Öryggisleysið læsist um það og afleiðingamar koma oft
frarn í ýmsum hegðunarvandkvæðum.
Ekkjur, sem hafa verið vel giftar, sakna mjög þeirrar aðstoðar,
sem faðirinn veitti þeim við uppeldi barnanna. Sakir hinnar miklu
trúar, sem barnið hefur á föður sínum, hefur hann oft aga á
því með návist sinni einni. Faðirinn á rnikinn þátt í að temja
barninu sjálfsstjórn, kenna því að hafa taumhald á skapi sínu
og hvötum. Mikilvægi hlutdeildar föðurins í uppeldinu fer sí-
vaxandi með aldrinum, og þegar barnið er orðið 8—10 ára eru í
flestu tilliti jöfnuð metin milli áhrifa löður og móður á barnið,
þótt þau geti ekki komið algerlega hvort í annars stað.
Athugun á börnum, sem misst hafa föður sinn og alizt hafa
upp með móður sinni, hefur leitt í ljós, hve hlutdeild föðurins í
uppeldinu er mikilvæg. Margar ekkjur eru áhyggjufullar og
hálfráðalausar um uppeldi barnanna. Þar skortir jafnvægi, sem
ríkti meðan faðirinn var á lífi. Sumar hneigjast til óæskilegs
strangleika og umvöndunarsemi, aðrar til of mikils eftirlætis og
agaleysis. Jafnvel þær, sem gera sér þetta ljóst og reyna að halda
jafnvægi, eiga í miklum örðugleikum. Það er erfitt verk fyrir
hvort foreldrið sem er að vera barninu bæði faðir og móðir. Við-
horf barnanna er einnig mjög misjafnt, en það er sem von er til
oftast óraunhæft. Oft spinnur það hina villtustu hugaróra um
föður sinn, hann er fyrir utan og ofan allt mannlegt.
Svipað gildir um óskilgetin börn, og hjónaskilnaðarböm, sem
aWt upp með móður sinni. Þau þjást og uppeldi þeirra bíður
hnekki, einkum ef þau hafa ekkert samband við föður sinn.
Barnið jrráir eðlilega að eiga föður og vaxa upp með honum.
Stundum kemur þessi ófullnægða þrá fram í hatri og hefndar-
draumum. Ef faðirinn er ókunnur, brýtur barnið heilann um
það fram og aftur, hvers konar rnaður hann sé og hver hann er,
°g veldur þessi umhugsun því miklum andlegum þjáningum og
heftir skapgerðarþroska þeirra. Stundum býr það sér jafnvel til
imyndaðan föður. Því skal þess gæta, þegar um óskilgetin börn
°g hjónaskilnaðarbörn er að ræða, að slíta þau ekki algerlega