Andvari - 01.01.1952, Side 96
92
Símon Jóh. Ágústsson
ANDVARI
úr tengslum við föður sinn, jafnvel þótt hann hafi ýmsa galla.
Gera sumar konur þar rangt og börnunum mikið illt, þar sem
þær halda þeim með öllu mögulegu móti frá föður þeirra og
ala jafnvel á hatri gegn honum. Þótt barnið alizt eltki upp með
föður sínum og hann sé ekki fær um að hafa uppeldi þess á
hendi og yfirvöldin telji heppilegra að fela móðurinni forræði
þess, þá þýðir þetta ekki það, að faðirinn geti ekkert fyrir barnið
gert og að hann eigi að láta það alveg afskiptalaust. Og sama
máli gegnir um móður, sem er ekki fær um að hafa böm í sinni
umsjá. Uppeldisstofnanir og einkaheimili, sem hafa slík börn í
fóstri, eiga að örva foreldrana til að hafa sem nánast samband
við þau og heimsækja þau eins oft og þau geta. Það á að tala
við þessi börn um foreldra þeirra, segja þeim, að öllum sé eðli-
legt að þykja vænt um foreldra sína, barninu á að veitast tæki-
færi til að láta í ljós vonbrigði sín og gremju yfir því, að for-
eldrar þess eru ekki eins og góðir foreldrar eiga að vera. Ekkert
fer verr með barnið en sár tilfinningareynsla, sem það getur ekki
talað um við neinn. Smám saman, eftir því sem barnið þroskast,
sættir það sig við faðerni sitt og móðerni og getur myndað sér
hlutlægari skoðun um foreldra sína. Oft skilur barnið ræktar-
leysi eða óhæfi þeirra, ef þessir ókostir eru raktir til misheppn-
aðs uppeldis og þjáninga, sem foreldrar þeirra hafa liðið í bemsku.
Barnið hefur liðið mikið sjálft og skilur þetta furðu vel.
Nú mun einhver spyrja: Fyrst það er svo mikilvægt upp-
eldi bamsins, að bæði faðir og móðir annist það sameiginlega,
eiga þá hjón, sem djúpur ágreiningur skilur, eru með illindi hvort
við annað, eða ef annað þeirra er hinu ótrútt, hefur mikla skap-
bresti, er ofdrykkjumaður o. s. frv., — eiga þau að halda hjóna-
bandinu áfram þrátt fyrir þetta, aðeins vegna barnanna? Hér er
ekki rúm til að ræða þetta mál, en að minni reynslu og margra
annarra er hjónaskilnaður oft betri af tvennu illu fyrir börnin
en mjög vont heimilislíf. Eljónaskilnaður bindur í mörgum til-
vikum endi á óbærilegt ástand á heimilinu. Og þegar til lengdar
lætur, líður barnið meira af sífellduin kvíða, spennu og tog-