Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1952, Side 97

Andvari - 01.01.1952, Side 97
andvahi Móðurvernd og föðurhandleiðsla 93 streytu, sem enga lausn £ær, heldur en við hreinan skilnað for- eldranna. Niðurstaðan verður sú, að hið eðlilega og æskilegasta upp- eldisumhverfi fyrir barnið er foreldraheimilið, þar sem bæði faðir og móðir hjálpast að við uppeldið. 011 röskun á þessum högum leiðir meiri eða minni þjáningar og óhamingju yfir bamið. Heim- ilið hefur hér svo mikilvægu hlutverki að gegna, að ekkert getur að fullu komið í þess stað. Framtíð og gæfa bamsins veltur þó meir á því, að móðirin ræki vel uppeldisskyldu sina við það, eink- um fyrstu æviár þess. Til vanrækslu móður á uppeldi bama í frumbernsku og til aðskilnaðar móður og bama þykjast nútíma sálfræðingar geta rakið óhamingju, ófullnægjandi geðheilsu og misferli í ríkara mæli en til alls annars. Einn rannsóknarmaður kemst að orði á þá leið, að sóttkveikjan sé fundin, þ. e. megin orsök þessara ágalla. En alveg eins og allir taka ekki berkla eða taugaveiki, þótt sóttkveikjur þessar berist í líkamann, eru sum böm með hliðstæðum hætti svo hraust og afburðamikil andlega, að þau geta þolað mikil uppeldismistök, án þess að þau virðist bíða verulegt tjón, þótt allur þorri barna láti bugast. Hið hezta veganesti, sem foreldrar geta gefið börnum sínum í lífinu, er að ala þau upp við góðan heimilisbrag, þar sem sátt og sam- lyndi ríkir. Mikill hluti karla og kvenna, sem reynast lélegir eiginmenn og eiginkonur og vanrækja á einhvern hátt uppeldis- skyldur sínar við börnin, koma einmitt frá gölluðum heimilum.1) Konur, sem vinna utan heimilis eiga að mínu viti erfitt um að gegna fullu starfi fyrstu æviár barnsins. Þær geta ekki unnið utan heimilis fullt starf án þess að það komi niður á barninu, nema þá' með sérstakri tillitssemi atvinnurekanda eða miklum stuðningi og hjálp eiginmanna sinna. Þær konur, sem úti vinna °g eru í góðum efnum, geta haft ráðskonu til að hugsa um börnin og heimilið, og ef þær eru heppnar í vali og helzt lengi t) Sjá um þetta rit L. M. Termans: Psychological Factors in Marital Happiness. N. Y. 1938.

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.