Andvari - 01.01.1952, Page 100
Leikritasafn Menningarsjóðs.
Út eru komin 4 hefti: 1. Leikrit Sigurðar Péturs-
sonar, „Hrólfur" og „Narfi“. 2. „Landafræði og
ást“, eftir Björnstjerne Björnsson. 3. „Maður og
kona“, eftir Emil Thoroddsen. 4. „ímyndunar-
veikin“, eftir Moliére. Á þessu ári koma út 2 leik-
rit, sem verða nr. 5 og 6 í safninu: „Piltur og stúlka“,
samið eftir samnefndri skáldsögu Jóns Thoroddsens
af sonarsyni hans, Emil Thoroddsen, og „Skugga-
Sveinn“, eftir Matthías Jochumsson. — Enn eru
áskrifendur leikritasafnsins ekki svo margir, að
öruggt sé, að hægt verði að halda útgáfu þess áfram.
Áskrifendur eru nú um 600, en þurfa að verða
800—900, svo að öruggt sé um framhaldsútgáfu.
Enn einu sinni er því heitið á alla leiklistarunn-
endur, leikfélög og bókamenn, að veita þessari til-
raun virkan stuðning með því að gerast áskrifendur
og safna áskrifendum, eftir því sem aðstaða reynist
til. — Áskriftarverð leikritanna er svo sem hér segir:
1. og 2. hefti kr. 30,00, 3. og 4. hefti kr. 30,00, 5. og
6. hefti kr. 40,00 (áætlað). Samtals kosta þannig
öll leikritin fyrir áskrifendur aðeins kr. 100,00. Sér-
stök kjör gilda fyrir félög eða stofnanir, sem skrifa
sig fyrir a. m. k. 10 eintökum.
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR
eftir Þorstein Einarsson íþróttafulltrúa og Stefán
Kristjánsson íþróttakennara. Allir íþróttaunnendur
þurfa að eignast þessa ágætu handbók. Kostar
aðeins kr. 45,00 innb.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins.