Andvari - 01.01.1943, Blaðsíða 31
axdvaiu
Vér viljum skilnað —
en skilja með sæmd.
Eftir Jón Blöndal.
Samskipta vorra sé endir
bróðurlegt orð.
j Matth. Jochumsson.
Með sambandslagasáttmálanum frá 1918 öðlaðist Island á ný
sjálfstæði sitt og fullveldi, eftir að hafa í sex og hálfa öld
°rðið að lúta erlendum yfirráðum, og miltinn hluta þessa langa
t'nia mátt una við arðrán og harðstjórn hins útlenda valds og
fulltrua þess. Með sambandslögunum viðurkenndi Danmörk
ísland sem fullvalda ríki og skuldbatt sig til að tilkynna það er-
tandum ríkjum. Viðurkenningin á sjálfstæði íslands, jafnt stór-
Veldanna sem flestra annarra ríkja, fékkst því með sambands-
lögunum, eða á næstu árum eftir að þau gengu í gildi, og er
þess vegna ekki fyrst til komin með herverndarsamningunum
IH’11. þótt þannig mætti ef til vill skilja ummæli sumra ís-
Jenzkra stjórnmálamanna, sem hafa viljað túlka þessa samn-
lnga eins og eins konar nýja frelsisskrá, er íslendingar ættu að
byggja á hina nýju stefnu sína í sjálfstæðis- og utanríkismál-
Uni þjóðarinnar
Sambandslögin voru árangur af aldalangri baráttu íslands
, eztu sona, sem fórnað höfðu kröftum sínum og hæfileikum
1 þjónustu þeirrar hugsjónar, að íslendingar yrðu á ný alger-
ega írjáls og sjálfstæð þjóð, sem engum erlendum valdboðum
Dyi'fti að lúta og gæti í öllu ráðið sínum eigin örlögum. Þessi
nrátta var borin uppi af þeirri sannfæringu, að vér Islendingar
'ærum þessu lilutverki vaxnir, að vér gætum staðið á eigin fót-
Uln- Og þótt þeir lengi vel væru ærið margir, sem efuðust um
þeita, þá er hitt fullvist, að smám saman sannfærðust svo að