Andvari - 01.01.1943, Blaðsíða 41
andvari
Vér viljum skilnað —
37
minnsta kosti hafi tekið þátt í atkvæðagreiðslunni og að
minnsta kosti % greiddra atkvæða hafi verið með samnings-
slituni, þá er samningurinn fallinn úr gildi.“
Samkvæmt þessu þurfa eftirfarandi fjögur skilyrði að vera
uPpfyllt til þess, að Islendingar geti fellt sambandslögin úr
gildi með einhliða ákvörðun af sinni hálfu:
1- Krafa þarf að koma fram af þeirra hálfu eftir árslok
1940 um, að teknir séu upp samningar um endurskoðun
sambandslaganna.
2. Samningar um endurskoðun þurfa að fara fram.
3- Ef ekki hafa tekizt nýir samningar 3 árum eftir að krafan
um endurskoðun kom fram, þarf Alþingi að samþykkja
að fella samninginn úr gildi og % hlutar þingmanna að
véra með því. Samþykktir, sem Alþingi kynni að gera í
þessu tilliti, áður en þessi 3 ár eru liðin, hafa enga réttar-
lega þýðingu.
Til þess að fella samninginn úr gildi þarf lolcs þjóðarat-
kvæðagreiðslu, sem % atkvæðisbærra manna taka þátt í,
°g 3Á greiddra atkvæða þurfa að vera með sambands-
slitum.
Vér skulum nú athuga þessi fjögur atriði lítillega.
Hefur af íslands hálfu verið farið fram á samninga við
Hani um endurskoðun sambandslaganna strax eftir árslok
1940? Þessari spurningu má svara ótvírætt neitandi.
Ástæðan til, að ekki var farið fram á samninga um endur-
skoðun, er auðsæ. Hinir ráðandi stjórnmálamenn vorir ætluðu
ser að fara leið „vanefnda“-kenningarinnar, en ekki leið sain-
bandslaganna, þeir ætluðu sér ekki að bíða hinn tilskilda 3
ai'a frest sámbandslaganna, og þess vegna var ekki farið fram
a endurskoðun. Er það þó dæmalaust gáleysi af hálfu þeirra
nianna, sem telja það nú lífsnauðsyn fyrir Islendinga að ganga
I*á formlegum sambandsslitum, áður en Evrópustríðinu er
lokið og þar með hernámi beggja sambandslandanna. Jafnvel
Pótt til mála hefði komið að nota vanefndaréttinn, hefði þó
'erið öruggast að halda opinni leið sambandslaganna, en svo
aiikil var fyrirhýggjan sem sagt ekki.