Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1943, Side 36

Andvari - 01.01.1943, Side 36
32 Jón Blöndal ANDVARI frekari aðgerðir hefðu orðið umdeilanlegar.“ Danir hafa lílca fyllilega viðurkennt réttmæti þessara ákvarðana, og konungur hefur svo um mælt, að liann mundi hafa fallizt á þær, ef þær hefðu verið lagðar fyrir liann til staðfestingar. Alþingi íslendinga hafði, eins og Bjarni Benediktsson orðaði það, talið, að „frekari aðgerðir“ en þær, að taka utanríkis- málin og liið æðsta vald inn í landið 1940, „hefðu orðið um- deilanlegar.“ En með frekari aðgerðum hlýtur að vera átt við fullkomin sambandsslit. En þegar um áramótin 1940 taka ákveðnir stjórnmálaforingjar að ókyrrast og tala um nauð- syn tafarlausra sambandsslita, jafnvel þótt a. m. k. þrjú ár væru eftir af þeim tíma, sem íslendingar voru bundnir af sain- bándslögunum. Verður tæplega varizt þeirri hugsun, að ástæðan til þess, að málið var upp tekið á þessum vafasama grundvelli og ekki á þeim grundvelli, sem sambandslagasamn- ingurinn ákvað, hafi staðið í sambandi við þá skoðun vissra stjórnmálamanna, að krafan um tafarlaus sambandsslit mundi vænleg til fylgis meðal kjósenda og ef til vill gagnleg í hinni innri flokksbaráttu, sem oft og einatt er jafnþýðingar- mikil í augum stjórnmálamannanna eins og baráttan við hina flokkana. Síðan má heita, að sjálfstæðismálinu, sem samkvæmt eðli sínu ætti að vera hafið yfir allar flokkadeilur, eins og utanríkismálin yfirleitt, hafi stöðugt verið otað fram í hinni óskemmtilegu valdabaráttu flokka og stjórnmálamanna und- anfarin ár, og það samkomulag, sem á stundum hefur virzt ríkja um málið, hefur verið meira á yfirborðinu heldur en undir niðri. Rökin fyrir sambandsslitum voru þau, að íslendingar hefðu öðlazt rétt til þeirra vegna „vanefnda" Dana á ákvæðum sam- bandslaganna. Hefur þó að sjálfsögðu orðið að viðurkenna, að hér er ekki um neina sök af Dana hálfu að ræða, eins og legið gæti í orðinu. En að „vanefndirnar“ eru að engu leyli Dönum sjálfum að kenna, hlýtur a. m. k. að hafa mjög miklar afleiðingar fyrir almenningsálitið bæði á Norðurlöndum og annars staðar. En hvað sem segja má um hinn svokallaða „vanefndarétt" frá fræðilegu sjónarmiði — en stoðirnar, sem

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.