Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1943, Page 50

Andvari - 01.01.1943, Page 50
46 Jón Blöndal ANDVARI konungsvaldið, verða skoðað sem óþarfa skapraun nú, er Danir eiga við svo erí'ið kjör að búa.“ Og menn verða að muna, að Kristján konungur er nú skoð- aður sein þjóðhetja vegna hinnar aðdáunarverðu framkomu sinnar gagnvart kúgunarvaldinu þýzka. Einmitt þess vegna mundi danska þjóðin líta á einliliða afsetningu hans sem konungs á íslandi sem stórlega móðgun við sig. En, kunna menn að spyrja, hvað gerir til, þó að vér móðg- um Dani, þó að vér að vísu græðum eklcert á því? Höfum vér ekki margs að minnast af þeirra hálfu, Kópavogs, Brim- arhólms, aftöku Jóns Arasonar o. s. frv.? Slík hefndarhugsun er bæði ógöfugmannleg og óviturleg, og veit ég, að hún á sér formælendur svo fáa á meðal íslenzku þjóðarinnar, að henni þarf ekki að andmæla. En eins og ég lagði áherzlu á í upphafi þessarar greinar, geta smáþjóðirnar á ekkert treyst í alþjóðamálum nema lög og rétt og vinsamlega sambúð við aðrar þjóðir. Ekkert er fávíslegra fyrir jafnlitla þjóð sem íslendinga en hrinda frá sér með ráðnum hug vináttu og sannið þjóðar, sem þeir sennilega þurfa að hafa mikil viðskipti við og geta notið styrks af á alþjóðlegum vettvangi. Reynsla smáþjóðanna af vernd og vináttu stórveldanna hefur ekki alltaf verið svo góð, að rétt sé að treysta ein- vörðungu á loforð þeirra og fyrirheit. Enginn veit enn, hvað við tekur eftir þetta stríð. Enginn vafi er á því, að smáþjóð- irnar þurfa að þjappa sér fast saman og styðja hver aðra dyggilega, ef þær eiga að hafa von um að geta bægt frá sér ásælni stórveldanna. Og erum vér íslendingar ekki einmitt á einu hættusvæðinu? Höfum vér efni á að missa nokkurn hugsanlegan bandamann, sem verðskuldar það nafn? Yrði aðstaða vor í samvinnu Norðurlandanna eftir stríðið hægari eftir framkomu gagnvart sambandsþjóð vorri, sem ekki að- eins hún fordæmir, heldur a. m. k. einnig almenningsálitið i Svíþjóð, eftir því sem fram hefur komið þar mjög greinilega? Þeim rökum fyrir sambandsslitum nú hefur verið hamp-

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.