Andvari - 01.01.1943, Blaðsíða 95
AXDVAM
Stofnun Jýðveldis á íslandi
91
stjórnarskránni. Víst þarf meiru að breyta. En aðstæður eiu
bær, að þessu er hægt að breyta nú: að stofnsetja hér lýðveldi
> stað konungsríkis, — þessu þarf að breyta nú, og yrði ef til
vill alls ekki kostur á að breyta þvi síðar. Það er þvi um að
gera að nota tækifærið nú, eða sleppa því. — Það þarf að breyta
fleiru í stjórnarskrá vorri, og gert er ráð fyrir þvi strax að
styrjöld lokinni. En það mun vægast sagt vera tvísýnt, hvort
hægt yrði að sameina þjóðina um þær breytingatillögur, sem
bá koma fram. —- En um lýðveldisstjórnarskrána er hægt að
sameina hana, þarf að sameina hana og það alla, — enda mun
sá endir á verða, að þjóðin standi um liana sem einn maður.
Það er svo mikið talað um sundrungu Islendinga — sem
ekki er heldur óeðlileg í stéttaþjóðfélagi — að mönnum hættir
'ið að gleyma þvi, að þeir geti staðið saman og hafi nýlega
staðið saman, er mikils þurfti við út á við.
Sameinaðir stóðu allir alþingismenn íslendinga 10. apríl 1940
11 m það að flvtja æðstu stjórnina inn í landið. — Og sameinuð
stóð þá þjóðin á bak við þá, þótt flokkadrættir væru sizt
minni þá en nú.
Sameinaðir stóðu allir málsmetandi menn þjóðarinnar og
bjóðarheildin með þeim, er brezkur hershöfðingi Iramdi þann
J’t'irgang og axarskaft að banna Þjóðviljann og flytja blaða-
menn hans af landi burt. Þeir örfáu afturhaldsseggir, sem lélu
hatrið þá blinda sig, hlutu fordæmingu alþjóðar.
íslenzka þjóðin hefur þolað of mikið i 700 ár, l'yrir það að
standa ekki sameinuð um frelsi sitt, er mest á reið, til þess að
hún þekki nú ekki sinn vitjunartíma. Hún mun sýna það
framini fyrir heiminum, að um ákvörðunina að stofna héi lýð-
veldi í siðasta lagi 17. júní 1944 erum vér allir eitt.
Sjálfstæðisbarátta íslendinga heldur áfram í nijrri mynd.
hm það þarf íslenzka þjóðin að gera sér ljóst, að baráttunni
|^rir sjálfstæði Islands er ekki lokið með stofnun lýðveldisins,
leldur er þá aðeins breytt um form hennar. Su sjalfstæðis-
harátta, sem háð hefur verið á einn eða annan liátt síðustu 7