Fréttablaðið - 25.09.2009, Síða 24

Fréttablaðið - 25.09.2009, Síða 24
24 25. september 2009 FÖSTUDAGUR UMRÆÐAN Thijs Peters skrifar um Icesave Hollenska ríkisstjórnin hefur hikað við að samþykkja kröfur og fyrirvara Alþingis vegna Icesave-samkomulagsins sem svo er kallað. Nokkurrar óánægju gætti meðal hollenskra stjórnmálamanna þegar fréttist af fyrirvörum þeim sem Alþingi setti fyrir ríkisábyrgð á lánum vegna Icesave-samkomu- lagsins. Það kom þeim svo sem ekki á óvart að Alþingi vildi breytingar á upphaflegu samkomulagi, enda vitað að Ísland ætti í miklum efna- hagslegum þrengingum. Það var form samskiptanna sem kallaði fram óánægju. Það var eins og Alþingi segði við Hollendinga: „Við endur- greiðum ekki l á n i ð n e m a að samþykkt- u m gef nu m skilmálum. Þið getið valið um að fá það sem ykkur er boðið eða að fá ekki neitt.“ Þetta er rétt eins og húseigandi ákveði hvað honum finnist sann- gjarnt að borga í afborganir af lánum sínum án þess að ræða það við bankann sem veitti lánið. Skilmálar Alþingis eða „óskir“, svo notað sé orðfæri hollenska fjár- málaráðuneytisins, breyta upphaf- lega samkomulaginu sáralítið. Þar er þó eitt atriði ásteytingar steinn. Samkvæmt skilmálum Alþingis mun Ísland endurgreiða 1,3 milljarða evra á tímabilinu 2016 til 2024. En vegna þess að Alþingi hefur tengt hámark árlegrar endurgreiðslu við hagvöxt er möguleiki á að einhver hluti skuldarinnar verði ógreiddur árið 2024. Mér skilst að þessi mögu- leiki sé ekki stórvægilegur. Styrkist gengi krónunnar og verði hagvöxtur á Íslandi í takt við spár Alþjóðagjaldeyrissjóðsins mun Ísland hafa borgað upp skuld sína við hollensk stjórnvöld á árinu 2024. En hér er um grundvallaratriði að ræða. Vilji Ísland, eitt af ríkustu löndum heims, ekki endurgreiða lán, hvernig getum við ætlast til þess að önnur lönd, miklu fátækari, endurgreiði sín lán? Hollensk stjórnvöld hafa þegar sýnt mikinn vilja til að breyta upp- haflegu samkomulagi þannig að dregið verði úr þrengingum Íslend- inga. Ef það þýðir lengri endur- greiðslutíma en þegar hefur verið rætt um þá er það í góðu lagi. En það verður þó erfitt að víkja frá því sem einn af þingmönnum á hollenska þinginu sagði: „Þeir verða að borga alla upphæðina með vöxtum.“ Það er að sjálfsögðu langt í frá auðvelt fyrir venjulegt fólk að sætta sig við að greiða skuldir sem einka- reknir bankar stofnuðu til. En það er ekki bara almenningur á Íslandi sem þarf að sætta sig við þau örlög. Sama á við um breskan og hollensk- an almenning sem einnig þarf að borga stórar fúlgur vegna mistaka breskra og hollenskra banka. Og það er rétt að halda því til haga að hollenskir skattgreiðendur munu borga hluta af reikningnum vegna Icesave. Þeir leggja fram greiðslur vegna innistæðna sem voru tryggð- ar umfram 20.887 evrur á hverjum reikningi. Komi í ljós í framtíðinni að endurgreiðslurnar vegna Icesave- samkomulagsins séu Íslandi of þungbærar verður fundin viðunandi lausn. En enn er allt of snemmt, séð frá hollenskum sjónarhól, að ræða um að fella niður hluta af þessari skuld. Höfundur er ritstjóri z24.nl, sem er leiðandi vefrit á sviði viðskipta- frétta í Hollandi og hluti af E24 International. Fyrirvarar við Icesave-samning frá sjónarhóli hollensks borgara THIJS PETERS UMRÆÐAN Steinunn Rögnvaldsdóttir skrifar um stjórnmál Þátttaka Vinstri grænna í ríkis-stjórn er mörkuð af risavöxnum verkefnum endurreisnar Íslands. Verkefnin eru mörg og erfið og ýmsum þykir ekki nóg að gert. Mig langar að fagna allri mál- efnalegri gagn- rýni á verk VG í ríkisstjórn, og öllum raunhæf- um t i l lögum um hvernig við getum staðið okkur betur við að endurreisa Ísland í anda velferðar, sjálfbærni og jafnréttis. Það er hins vegar ómálefnalegt að halda því fram, eins og sumir gera, að það sé núverandi stjórn- völdum að kenna að hér sé erf- itt efnahagsástand. Vinstri græn gagnrýndu stjórnvöld árum saman í aðdraganda hrunsins, en komu ekki nálægt þeim ákvörðunum sem leiddu til hrunsins. Það er staðreynd að hægrimenn stjórn- uðu landinu og þar með ákvörðun- um í efnahagslífinu, í átján ár fyrir hrunið. Þá töldu frjálshyggjumenn sig vera að sigla Titanic á sjó efna- hagslífsins, og gerðu ekki ráð fyrir að það væri nein alvöru þörf fyrir björgunarbáta. Það gerir að sjálf- sögðu björgunarstarfið núna erfið- ara. Slys af þessari stærðargráðu verður aldrei sársaukalaust, sama hversu heitt við þráum að koma öllum heilum heim. Það sem léttir mína lund þó að ástandið sé erfitt eru áfangar eins og t.d. þegar grunnframfærsla námsmanna er hækkuð um 20%, þegar keppt er um leyfi til strand- veiða, þegar vændiskaup – ein birt- ingarmynd kynferðisofbeldis – eru gerð ólögleg, þegar hafinn er undir- búningur að stækkun friðlandsins í Þjórsárverum og þegar ríkisstjórnin samþykkir að hefja gerð áætlunar um sjálfbærar samgöngur. Það má vera að VG standi sig ekki alltaf nógu vel. En stjórnmála- afl er ekki sjálfstýrð vél, heldur fólkið sem myndar aflið. Ef við vilj- um hafa áhrif á stefnu flokksins, þá verðum við að berjast fyrir þeim innan flokksins. Ekki gefast upp og setjast í sófann. Við breytum engu þannig. Við þurfum að taka slaginn, gagnrýna samflokksmenn okkar, benda á betri leiðir og bjóðast til að hjálpa þeim sem vilja byggja betra samfélag. Höfundur er formaður Ungra Vinstri grænna. Að byggja betra sam- félag STEINUNN RÖGNVALDSDÓTTIR Vísindavaka 2009 Allir velkomnir. Láttu sjá þig!vísindamenn. Stefnumót við Vísindavaka er árlegur viðburður þar sem almenningi gefst kostur á að hitta vísindamenn sem stunda rannsóknir í hinum ýmsu vísindagreinum og kynnast viðfangsefnum þeirra. Öll fjölskyldan fi nnur eitthvað við sitt hæfi á Vísindavöku. www.rannis.is/visindavaka Laugavegi 13, 101 Reykjavík sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is Menntamálaráðuneytið Iðnaðarráðuneytið H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Í dag!

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.