Fréttablaðið - 25.09.2009, Side 34
4 •
Magnús Ásgeirsson er fyrsti
tvífari fræga fólksins hér í
POPP. Vinir hans sendu okkur
mynd af honum, en þeim
hefur alltaf fundist hann líkjast
leikaranum Neil Patrick Harris,
sem túlkar graðfolann Barney
Stinson í þáttunum How I Met
Your Mother.
Átt þú vin sem líkist einhverjum frægum? Er
bróðir þinn alveg eins og Nicolas Cage eða
er besta vinkona þín sláandi lík Katy Perry?
Sendu okkur mynd á
popp@frettabladid.
is eða sms í síma 696
POPP (696 7677) og
hún gæti birst í næsta
tölublaði.
TVÍFARAR FRÆGA FÓLKSINS
MAGNÚS ÁSGEIRSSON BARNEY STINSON
„Það eru nokkur ár síðan ég
fékk þessa hugmynd fyrst. Ég
var að ræða við finnskan félaga
minn um hversu svekktur ég
væri yfir því að Ísland væri ekki
hluti af Skandinavíu og ákvað í
kjölfarið að stofna mína eigin
„avíu“,“ segir Björgvin Gunnars-
son, sem stofnaði Fésbókarhóp
tileinkaðan hinu nýja landssvæði
Koolinaviu.
„Koolinavia er hópur fyrir þau
Norðurlönd sem eru ekki með í
Skandinavíu. Nafnið ákvað ég
vegna þess að fólkið sem býr
í þessum löndum er „kúl“ og
vegna kalda loftlagsins. Finnskur
vinur minn stakk svo upp á því
að við myndum skrifa þetta með
ká-i en ekki c-i af því það væri
meira „kúl“.“
Björgvin, sem dagsdaglega
stundar nám í fornleifafræði
við Háskóla Íslands, segir að
öllum Íslendingum, Færeyingum,
Finnum og Grænlendingum sé
velkomið að ganga til liðs við
hópinn en Skandinavar séu því
miður óvelkomnir. „Skandinav-
ar eru ágætis fólk en þeir eru
engir Koolinavar og fá því ekki
að vera með í þessum hópi,“
segir Björgvin að lokum og tekur
fram að nái hópurinn
fimm hundruð með-
limum verði efnt til
samkeppni þar sem
hægt er að senda
inn hugmyndir
að fána fyrir
Koolina-
viu.
- sm
SKANDINAVAR FÁ
EKKI AÐ VERA MEÐ
KOOLINAVIA Björgvin Gunnarsson stofnaði nýja „aviu“ fyrir þau
Norðurlönd sem eru ekki talin til Skandinavíu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Skráarskiptasíðum fjölgaði í byrj-
un þessa árs. Síðurnar virðast þó
ekki langlífar því fáir eru reiðu-
búnir til að styrkja rekstur þeirra
með fjárframlögum. Hin um-
deilda skráarskiptasíða thevik-
ingbay.org var nýlega sett aftur
í loftið. Allar leiðbeiningar eru á
íslensku en viðkomandi virðist
hafa haft töluvert mikið fyrir því
að hylja sína slóð, vefurinn var
skráður með pósthólf í Reykja-
vík en viðkomandi var sagður
vera Phil Davids með sænskt,
ótengt númer. Snæbjörn Stein-
grímsson, framkvæmdastjóri
SMÁÍS, samtaka myndrétthafa,
segir að þeir hafi klárlega orðið
varir við að menn vildu nálgast
ókeypis afþreyingu á netinu eftir
að kreppan reið yfir Ísland því
skráarskiptasíðum hafi fjölgað í
upphafi þessa árs. En þeir fylgist
vel með enda þyki rétthöfum
ákaflega vænt um sinn rétt, nú
þegar hart er í ári. „Og nú er
það svo að það eru störf undir,“
segir Snæbjörn.
„Menn hafa verið að reyna að
fela sína slóð með því að skrá
vefslóðirnar erlendis. En síðan
kom gengisfellingin í bakið á
þeim og þær voru fljótar að deyja
út. Svo voru menn að biðja um
styrki til að halda þessu gangandi
en það reyndust fáir reiðubúnir
til að inna einhverjar greiðslur
af hendi,“ segir Snæbjörn.
- fgg
SKRÁARSKIPTASÍÐUM
FJÖLGAR Í KREPPUNNI
FYLGJAST VEL MEÐ NETINU Töluverð fjölgun
á skráarskiptasíðum í upphafi þess árs. Fáir virð-
ast þó reiðubúnir til að styrkja slíkar síður með
fjárframlögum og því verða þær ekki langlífar.
BJÖRGVIN G: STOFNAR LANDSSVÆÐI
BJÖRGVIN GUNNARS-
SON VAR SVEKKTUR
YFIR ÞVÍ AÐ VERA
EKKI HLUTI AF
SKANDINAVÍU. HANN
STOFNAÐI ÞVÍ EIGIÐ
SVÆÐI: KOOLINAVIU,
FYRIR LÖNDIN SEM
ERU EKKI MEÐ.
Árið 1926 kom út
kvikmyndin Torrent
með Gretu Garbo í
aðalhlutverki. Ólögleg
skráaskipti þekktust
ekki þá, en myndin
fjallaði um náttúru-
hamfarir.
Dove línan frískar og endurnærir líkamann frá hvirfli til ilja.
slökunsvalandi
með
nú er tíminn til aðlosna við stressið
• NÍU MILLJÓNIR SÁU
FRUMSÝNINGUNA
Fimmta þáttaröð How I
Met Your Mother hófst í
Bandaríkjunum síðasta
mánudag. Rúmlega níu
milljónir manna horfðu
á þáttinn, sem fjallaði
um mótþróa Barney
og Robin gegn því að
spjalla um samband sitt.
Þá hefur Ted störf sem
háskólakennari, en í
örvæntingafull tilraun til
að ná stjórn á nemendum
sínum leysir hann úr
læðingi sinn innri skíthæl
– með hrikalegum afleið-
ingum.