Fréttablaðið - 25.09.2009, Síða 35

Fréttablaðið - 25.09.2009, Síða 35
 • 5 „Þetta gengur mjög vel og hátíðin í ár verður án efa alveg frábær,“ segir Einar Ben, einn þriggja eigenda AM-Events sem sér um skipu- lagningu Októberfests, sem fer fram 8.-10. október. Há- tíðin, sem haldin er í stærðar- innar tjaldi á túninu fyrir framan Háskóla Íslands, hefst með Rokkfesti á fimmtudeg- inum, á föstudeginum verður svo hefðbundið Októberfest með tilheyrandi bjórþambi, bratwurst-áti og þýskri blásaratónlist. Á laugardeg- inum fer fram sveitaball og mun hljómsveitin Skítamórall leika fyrir dansi. „Í fyrra settum við Íslandsmet í bjórsölu og við stefnum á að slá það met nú í ár. Mig minnir að við höfum selt um 12.000 stóra bjóra í fyrra, en þar sem nemendum við Háskóla Íslands hefur fjölgað svo mikið í ár held ég að það ætti ekki að vera erfitt að slá þetta met,“ segir Einar. - sm STEFNA Á AÐ SLÁ MET Í BJÓRSÖLU SKIPULEGGJA BJÓRHÁTÍÐ Andri, Einar og Tindur eiga AM-Events og sjá um að skipuleggja Októberfest sem fer fram 8.-10. október. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Gítarhetjan Slash vinnur þessa dagana að sólóplötu og leyfir aðdáendum sínum að fylgjast náið með í gegnum Twitter. Í vikunni tók hann upp með Dave Grohl á trommum og Duff McKagan, sem var með honum í Guns N‘ Roses, á bassa. „Gott að djamma með Duff & Grohl í kvöld, lagið er rosalegur instrúmentall,“ skrifaði krullhærði viskí- aðdáandinn. Velvet Revolver, núverandi hljómsveit hans, er að leita að nýjum söngvara og Slash hefur því haft nægan tíma til að sinna eigin efni. Mikill og góður hópur tón- listarmanna hefur litið inn í hljóð- verið og lagt honum lið. Má þar nefna menn á borð við Ozzy Osbourne, Chris Corn- ell, Flea og Iggy Pop. Seint verð- ur sagt að góðri tónlist sé haldið að börnum í dagskrárlið- um fyrir þau í sjónvarpi. Undantekn- ing þar á er þátturinn Yo Gabba Gabba! sem sýndur er á Nickelodeon-stöðinni vestanhafs. Þátturinn þykir vel heppnaður og ekki skemmir fyrir að prýðisgóðir tónlist- armenn koma fram í þeim. Meðal banda og tónlistar- manna sem hafa komið fram í þáttunum eru the Shins, of Montreal, the Roots, Chrom- eo, Mark Kozelek, Biz Markie, og I’m From Barcelona. Trent Reznor, forsprakki Nine Inch Nails, ætlar að starfa með popparanum Gary Numan sem gerði garðinn frægan á níunda áratugnum. Nýlega steig Numan á svið á tónleikum Nine Inch Nails og nú stendur til að hann fari í hljóðver með Reznor og þeir vinni saman að nýju efni. „Þetta verða örugglega nokkur lög til að byrja með og við sjáum síðan hvernig þetta gengur,“ sagði Numan. Damon Albarn er einn þeirra sem koma til greina sem listrænn stjórnandi opnunar- athafnar Ólympíuleikanna í London 2012. Skipuleggjend- urnir hafa einnig rætt við leikstjór- ann Stephen Daldry um að stjórna athöfninni. Tilkynnt verður á næsta ári hver verður fyrir valinu. Albarn hefur einhverja reynslu af íþróttaviðburðum sem þessum því hann ásamt Jamie Hewlett, félaga sínum úr Gorillaz, bjuggu til opnunar- senuna fyrir umfjöllun BBC um Ólympíuleikana í Peking.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.