Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.09.2009, Qupperneq 44

Fréttablaðið - 25.09.2009, Qupperneq 44
10 • TEXTI: Dr. Gunni MYND: Valgarður Gíslason Strákarnir í Cliff Clavin nefna bandið eftir lúðalega póstinum í Staupasteini. „Það er krefjandi verkefni að gera þetta nafn kúl,“ segja þeir. Strákarnir eru fæddir 1987, nema bassaleikarinn Þórólf- ur („Tótó“) sem er fæddur 1989 og fær að heyra það. Hinir heita Fannar (gítar), Arnar (trommur) og Bjarni sem syngur og spilar á gítar. Bjarni er bróðir Kristós, söngvara Lights on the highway. Tveir þeir síðastnefndu tala mest. Hinir segja eiginlega ekki neitt. Bandið er frá Garðabæ og byrj- aði 2005. Arnar: „Garðabær er flottur bær. Það er allavega nóg af pen- ingum þar. Það er talað um að þetta sé best stæða bæjarfélagið á landinu. Miðað við höfðatölu allavega.“ Eru engin hverfi sem eru tóm? Bara ljósastaurar og malbik? Fannar: „Jú, jú, það er fullt af þeim. Helmingurinn af Arnarnes- heiðinni er til dæmis tómur.“ Eruð þið þjóðernissinnaðir Garðbæingar? Bjarni: „Nei, ekki við. En vina- hópur okkar er með „210“ flúrað á innanverða vörina. Heill hópur ungra manna.“ Arnar: „Two One O. Það er eitthvert gettógrín.“ Sjáðu bara William Hung Hver er svo draumurinn? Að komast í burtu frá Garðabæ? Arnar: „Niður á Laugaveg, meinarðu? Bjarni: „Draumurinn er bara að ná að vera starfandi sem hljómsveit og gera eitthvað skemmtilegt. Fara út að spila og spila á fullu hér.“ Hvað eruð þið að gera núna? Ég meina, að vinna? Bjarni: „Ég vinn í Tónastöðinni. Arnar er í skóla.“ Tóti: „Ég er í bæjarvinnunni í Garðabæ.“ Fannar: „Og ég er að vinna hjá Hreinsitækni.“ Og þið viljið eðlilega sleppa frá þessu öllu og sinna rokkinu fúlltæm? Bjarni: „Auðvitað. Algjörlega. Er það ekki markmið allra hljóm- sveita?“ Arnar: „Þetta er spurning um mikla vinnu og mikla heppni. Að „meikaða“ er nánast eins og að vinna í lottóinu. Og svo að hafa trú á sér. Sjáðu bara William Hung í Idolinu.“ Bjarni: „Það er núna eða aldrei held ég. Maður er ekkert að fara á einhvern skítatúr um Bretland þegar maður er fimmtugur.“ Já, einmitt. Þið farið ekki að túra komnir með konu og barn. Eða hvað, eruð þið með svo- leiðis? Arnar: „Nei, ekki nema þennan (bendir á Tóto, sem segir honum að halda kj …) Nýja íslenska rokkbylgjan Tilheyrið þið einhverjum hópi í íslensku músíksenunni? Bjarni: „Tja … Við eigum vini í öðrum hljómsveitum, til dæmis í Diktu, sem er líka frá Garðabæ. Við höfum spilað mikið með þeim og svo Agent Fresco og Mammút.“ Og er eitthvað lið að mæta á tónleika? Arnar: „Já fullt af liði, maður. Til dæmis á Batteríinu um daginn. Við, Dikta, Mammút og Agent Fresco. Þetta er nýja íslenska rokkbylgjan.“ Ég spyr þá hvort bandið verði ekki að gera eitthvað rosalegt til þess að eftir því verði tekið. Eftir nokkrar rökræður um málið segir Bjarni: „Nei, ég held að það sé bara best að gera það sem við gerum. Við erum bara við og spilum bara það sem við fílum.“ Arnar: „Músíkin sem við fílum er úti um allt. Það er ekkert eitt. Þegar við semjum lag þá kemur hugmyndin einhvers staðar að og við spilum úr henni í bílskúrnum eins lengi og við nennum.“ Bjarni: „Þetta fer eftir and- rúmslofti. Stundum verður lag til á kortéri án þess að það hafi verið meiningin.“ Engin bryti tönn fyrir mig Það er enn þá frekar lítið rokk í þessu viðtali. Þetta gengur náttúrulega ekki. Bjarni: „Ha, rokk?“ Já, ég meina, hafið þið aldrei hent sjónvarpstæki út um hótel- herbergisglugga? Bjarni: „Við höfum nú nánast aldrei fengið gistingu þegar við höfum spilað svo okkur hefur ekki tekist að rústa hótelherbergi ennþá.“ Arnar: „Jú, við sváfum í koju í gömlu hvalveiðiskipi á Húsavík. Fannar rak hausinn upp undir þegar hann vaknaði. Það var svo mikið rokk.“ Fannar: „Við vorum búnir að sjá fyrir okkur að fara blindfullir að sofa og vakna svo þegar báturinn væri kominn hálfa leið til Kulusuk. Það gerðist næstum því, því það var barið klukkan sjö um morguninn þegar við höfðum sofið í tvo tíma og okkur sagt að báturinn væri að fara. Við drifum okkur og stóðum svo eins og fífl á bryggjunni fyrir utan barinn sem við höfðum spilað á kvöldið áður, Gamla bauk. Síðan fór aldrei báturinn en við stóðum þarna endalaust. Við hefðum alveg getað sofið til klukkan tvö.“ Þetta er svakalegt. Eru strák- arnir í Cliff Clavin bara þægir mömmustrákar frá Garðabæ? Bjarni: „Við eigum engar heróín- sögur, sko. Ég skal láta þig vita þegar það gerist.“ En kvenfólkið hlýtur að minnsta kosti að vera eitthvað utan í ykkur, er það ekki, þið verandi þessir sætu strákar? Bjarni: „Grúppíurnar? Ég er búinn að vera að spá í þær. Ég held að það sé búið að breytast dálítið mikið. Ég get ekki ímynd- að mér að nokkur myndi brjóta upp úr tönninni á sér þótt tönn brotnaði í mér. Það er af sem áður var með Bó.“ Arnar: „Það eru allavega engar stelpur sem koma og tala við okkur eftir tónleika.“ Bjarni: „Ekki neinar! Það eru eintómir strákar sem koma og segja: „Geðveikir tónleikar, takk LÍTIÐ ROKK AÐ SIG ÚT ÚR HVA Prófaðu frítt í 7 daga! Áskriftartilboð viðskiptavina Símans Ótakmarkaður aðgangur að íslenskri og erlendri tónlist. 2.500.000 laga í boði. Þú getur hlustað (streymt), búið til lagalista, keypt tónlist . Íslensk og erlend tónlist Ótakmarkaður aðgangur að íslenskri og erlendri tónlist - 2.500.000 laga í boði. Þú getur hlustað (streymt), búið til lagalista, keypt tónlist. Fengið sértilboð/afslætti og margt fleira. Íslensk tónlist Ótakmarkaður aðgangur að íslenskri tónlist, 50.000 lög í boði. Þú getur hlustað (streymt), búið til lagalista, keypt tónlist - 2.500.000 laga í boði. Fengið sértilboð/afslætti og margt fleira. Frá 549,- Frá 799,- Frá 549,- Áskrift borgar sig! Áskriftarleið 1 Áskriftarleið 2 Áskriftarleið 2 - Tilboð CLIFF CLAVIN „Músíkin sem við fílum er úti um allt. Það er ekkert eitt. Þegar við semjum lag þá kemur hugmyndin einhvers staðar að og við spilum úr henni í bílskúrnum eins lengi og við nennum.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.