Fréttablaðið - 25.09.2009, Síða 45

Fréttablaðið - 25.09.2009, Síða 45
 • 7 The Resistance er góð plata. Hún er í raun alveg eins góð og búist var við. The Resist- ance bætir engu við glæsi- legan feril Muse, en tekur ekki heldur neitt í burtu. Ef hún færi inn í úrvalsvísitölu Muse, þar sem Origin of Symmetry væri hápunkturinn, yrði línan bein frá síðustu plötu, Black Holes and Revelations. Muse er búin að finna upp- skrift sem virkar. Strákarnir vita samt að til þess að halda aðdáendum sínum spenntum þurfa þeir að bæta við krydd- um sem gefa tónlistinni fram- andi bragð. Queen-kryddið í United States of Eurasia kemur á óvart – rétt eins og System of a Down-kryddið í Unnatural Selection. Metal- kryddið í enda þess síðar- nefnda gefur einnig skemmti- lega öðruvísi bragð. Annars er The Resistance full af augnablikum þar sem gæsahúðin þakti stæltan líkama gagnrýnanda; lagið MK Ultra hafði þau áhrif, eins og sinfóníurnar í enda plötunnar. Já, tölum aðeins um þær. Aðeins Muse kæmist upp með að stilla upp þriggja hluta sinfóníu í enda popp/rokk- plötu. Enginn kemst upp með að ýkja hlutina eins og Muse og þar liggur sérstaða þeirra. Sérstaða sem þeir hvorki vilja né þurfa að slíta sig frá. Muse er löngu orðin stofnun í tón- listarbransanum. Hljómsveit- in stendur fyrir það sem er „einum of“ í tónlist – og kemst upp með það. Atli Fannar Bjarkason POPPRÝNI: MUSE – THE RESISTANCE EINUM OF ... MUSE THE RESISTANCE DÁNLÓDAÐU: Unnatural Selection, MK Ultra Ð LÁTA REKA ALVEIÐISKIPI fyrir mig“ – glatað!“ Hvar eru allar stelpurnar? Arnar: „Þær eru þarna. Ég held bara að þær séu allar á föstu. Með þessum gaurum sem koma og tala við okkur. Eða kannski eru þetta bara frænkur þeirra.“ Bjarni: „Cliff Clavin: Ömurleg hljómsveit! Reknir upp úr skipum og engar stelpur vilja tala við þá. Ha ha, við ættum bara að hætta þessu strákar.“ CLIFF CLAVIN UM MEIKIÐ Strákarnir segja mér frá mönnum eins og Kanan- um Warren Riker (hefur unnið með Michael Jack- son og Fugees og fengið Grammy-verðlaun) og Bretanum Martin Rushent (sem hefur unnið með Human Leagues, Strang- lers og Buzzcocks). Þessar kempur sitja nú yfir tónlist Cliff Clavin og pæla í því hvernig megi gera upp- tökurnar enn betri. Búið er að taka fyrstu stóru plöt- una upp. Það var að mestu gert í janúar og strákarnir vona að hún komi út snemma á næsta ári. Arnar: „Við erum í stífu prógrammi með umboðs- mönnum.“ Bjarni: „Þetta hefur allt verið að gerast síðan við unnum Global Battle of the Bands í góðærinu 2007. Eftir sigurinn hér heima fórum við út og spiluðum í London. Þar kynntumst við Crispin Vaughn Thomas. Hann er sonur Kens Thomas, upptökumanns sem hefur unnið mikið með íslensk- um hljómsveitum. Hann hefur komið hingað og unnið í plötunni og svo hafa aðrir aðilar bæst við.“ Arnar: „Við höfum nú bara sjálfir fjármagnað þetta allt saman hingað til. Við sóttum um styrk hjá Garðabæ en fengum ekki neitt.“ Hverfi sgötu 82, s. 551 1195 Theo monk – piano. Johnny Griffi n - tenor sax - Ahmed Abdul Malik - bass-Roy Haynes - drums Útgáfuár 1958. Sonny Rollins - tenor sax. Tommy Flanegan – piano. Doug Watkins – bass . Max Roach - drums. Útgáfuár 1956. Opið til kl. 21 á kvöldin mán-föst Cannonball Adderley - alto sax. Nat Adderley – cornet. Bobby Timmons – piano. Sam Jones - bass- Louis Hayes – drums. Útgáfuár 1959 Wes Montgomery –guitar. Tommy Flanegan – piano. Percy Heath – bass. Albert Heath - drums. Útgáfuár 1960. John Coltrane - tenor sax. Donald Byrd – trumpet. Red Garland – piano. Earl May/Paul Chambers – bass. Louis Hayes/Art Taylor/Albert Heath - drums Útgáfuár 1957/58 Lucky records er ný plötubúð í bænum sem er með mikið úrval af vínil, cd’s og tónlista dvd’s og hér eru 5 klassiskir cd’s sem Lucky mælir með og eru fáanlegir á góðu verði. Kaupum einnig vínil, DVD og Cd.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.