Fréttablaðið - 25.09.2009, Blaðsíða 47
• 13
Sú var tíðin að Need for
Speed leikirnir þóttu aðal í
bílaleikjageiranum, en svo er
ekki lengur. Hver hörmungar-
leikurinn á eftir öðrum hefur
dregið orðspor seríunnar niður
í svaðið. En nú hefur Need
for Speed Shift blásið nýju
lífi í þessa gömlu druslu og
það var löngu orðið tíma-
bært. Sagt hefur verið skil við
hina þreyttu götukappakst-
urs formúlu og þess í stað
hefur verið snúið til einfaldari
keppna, á afmörkuðum keppn-
isbrautum. Spilun leiksins
snýst nú ekki um neonljós
undir bílnum og skyggðar
rúður heldur skiptir góða akst-
urslínu. Segja má að Shift sé
líkari leikjum á borð við Gran
Turismo og Forza Motorsport
heldur en fyrri leikjum seríunn-
ar. Það sem Shift gerir vel er
að gera keppnina innan Need
for Speed spennandi á ný.
Manni líður eins og maður sé
bakvið stýrið á 500 hestafla
tryllitæki og þegar öskrandi
vélardrunur bætast við skap-
ast stemming sem er verðug
þess orðspors sem hinir gömlu
Need for Speed sköpuðu.
Viggó Ingimar Jónsson
„Þega ég var í tíunda bekk í grunn-
skóla var boðið upp á gull- og
silfursmíði sem valfag, ég ákvað
að prófa og heillaðist strax af fag-
inu. Á þessum tíma var ég líka að
æfa íshokki og langaði mikið til
að verða atvinnumaður í þeirri
íþrótt. Eftir að hafa leikið með liði
í Finnlandi í eitt tímabil bauðst
mér samningur hjá gullsmið í Dan-
mörku fyrir nokkrum árum og ég
ákvað að taka honum,“ segi Jónas
Breki Magnússon, gullsmiður í
Danmörku.
Jónas Breki hannar skartgripi
undir nafninu Breki Design og
hefur vakið nokkra athygli fyrir
hönnun sína sem einkennist af
hauskúpum og er að
auki undir rokkáhrifum.
Hann hefur verið í læri
hjá danska gullsmiðnum
Ole Lynggaard síðastliðin
ár og mun ljúka sveinsprófi
nú í desember. Jónas hefur
einbeitt sér að því að hanna skart
handa karlmönnum og líkt og áður
hefur komið fram eru hauskúpur
áberandi í hönnun hans. „Það var
ekki hugsunin að fara að hanna
sérstaklega fyrir stráka en það varð
bara þannig. Sumum gullsmiðum
finnst erfitt að hanna skart fyrir
stráka en það virðist liggja nokkuð
auðveldlega fyrir mér. Ástæðan
fyrir því að ég nota hauskúpur
svona mikið í hönnun minni er
sú að mér finnst formið
flott og það er gaman
að vinna með það,“ segir
Jónas Breki.
Aðspurður segist Jónas
ekki vita hvað taki við að náminu
loknu, hann langi þó í frekara nám
í skartgripahönnun. „Ég hef verið
að skoða skóla í Bandaríkjunum
og eins hef ég verið að reyna að
koma hönnun minni í verslanir hér
í Danmörku. Þess utan er framtíðin
nokkuð óráðin enn sem komið er,“
segir Jónas Breki að lokum. Þeir
sem hafa áhuga á að skoða hönnun
Jónasar Breka geta leitað undir
heitinu Breki Design á Fésbókinni.
- sm
FRÁ ÍSHOKKÍI
YFIR Í GULLSMÍÐI
SKART FYRIR STRÁKA Jónas Breki hannar
mikið af skarti handa strákum. Hauskúpurnar
eru nokkuð ráðandi í hönnun hans.
BREKI DESIGN Jónas Breki lýkur sveinsprófi í vetur. Hann hannar undir nafninu Breki Design.
TÍSKA: HAUSKÚPU Á PUTTANN
NÝJU LÍFI BLÁSIÐ Í GAMLA DRUSLU
NFS:
SHIFT
GRAFÍK
HLJÓÐ
SPILUN
NIÐURSTAÐA
5/5
4/5
4/5
4/5
ENDING
4/5