Fréttablaðið - 25.09.2009, Side 62
30 25. september 2009 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Ath.
Iceland Airwaves hefur nú bætt við
Listasafni Reykjavíkur sem einum af
fjölmörgum tónleikastöðum og er þar með
að bregðast við aukinni eftirspurn eftir
miðum á hátíðina í ár. Upphaflega stóð til
að hafa Listasafnið ekki með á hátíðinni
vegna ótta við fjárhagsástandið hérlend-
is þar sem kostnaðurinn við uppsetningu í
húsinu er mjög mikill. En í ljósi frábærrar
miðasölu hefur þeirri ákvörðun verið
breytt og 600 miðum bætt við. Þetta þýðir
að einhverjar tilfæringar verða gerðar á
dagskránni. Þær verða kynntar nánar á
næstu dögum. Miðasala á viðbótarmiðum
hófst í gær www.icelandairwaves.is og
Smekkleysubúðinni, Laugavegi 35.
> Ekki missa af
sýningum á Djúpinu, einleik
Ingvars E. Sigurðssonar eftir
Jón Atla Jónasson, en hann
verður fluttur í tvígang í kvöld í
Samkomuhúsinu á Akureyri.
Matthías Jochumsson á
fjölmarga sálma í sálmabók
okkar íslendinga. Þeir eru
öllum kunnuglegir enda má
heita að hann hafi ort sálm
fyrir hvern af helstu merkis-
dögum mannsævinnar, hvort
sem um er að ræða skírnir,
giftingar eða jarðarfarir.
Matthías var eitt afkasta-
mesta sálmaskáld sinnar
tíðar og margir sálma hans
hafa reynst lífseigir. Sálmar
Matthíasar boða einnig
bjartsýni, trú og von til þjóðar
sinnar sem á hans tíma var
að rísa upp á ný eftir mjög
erfiða tíma.
Matthíasar Jochumsson-
ar verður minnst sem sálmaskálds á þremur
tónleikum sem ráðgerðir eru. Fyrstu tveir
tónleikarnir verða haldnir
sunnudaginn 27. september í
Eyrarbakkakirkju kl.16 og síðan
sama dag í Stóra-Núpskirkju
kl. 20.30. Þriðju lokatónleik-
arnir verða haldnir í Kristkirkju,
Landakoti, þriðjudaginn 29.
september klukkan 20.
Alls munu tólf fegurstu sálm-
ar Matthíasar Jochumssonar
verða fluttir á tónleikunum í
bæði hefðbundnum og nýjum
útsetningum eftir þá Smára
Ólason og Hilmar Örn Agnars-
son. Á milli sálma Matthíasar
verða flutt trúarleg verk eftir
W.A. Mozart, G.F. Händel og
J.S. Bach.
Flytjendur á tónleikunum
eru Gerður Bolladóttir sópran, Victoría Tarevskaia
selló og Hilmar Örn Agnarsson orgel.
Tónleikar helgaðir trúarljóðum Matthíasar
TÓNLIST Þrennir tónleikar eru fram
undan á þekktum sálmum sem
eru lagsettir við trúarljóð Mattíasar
Jochumssonar.
FRÉTTABLAÐIÐ/LJÓSMYNDASAFN ÍSLANDS
ÞJÓÐMINJASAFNI
Rétt eftir miðjan mánuðinn birti
Variety dóm um heimildarmynd
Friðriks Þórs Friðrikssonar,
Sólskinsdrenginn, eftir John
Anderson. Þar er farið lofsamleg-
um orðum um mynd Friðriks. Hann
lýsir myndinni sem inngangsverki
um einhverfu, en það er hin enska
útgáfa verksins sem hann fjallar
um. Anderson segir Sólskinsdreng-
inn „einstaklega fallega heimildar-
mynd og Friðrik rammi atburðarás-
ina eins og um rómantíska leikna
mynd væri að ræða og þrátt fyrir
flóð upplýsinga og á tíðum þurr-
ar staðreyndir haldi fegurð mynd-
arinnar athygli áhorfenda“. Hann
hrósar sérstaklega framlagi töku-
mannsins en Jón Karl Helgason,
sem hefur verið viðloðandi flestar
heimildarmyndir Friðriks, er nú
ábyrgur fyrir tökunni.
Hann ræðir síðan efnisþætti
myndarinnar og tildrög hennar,
gerir almennum lesendum Variety
nokkra grein fyrir stöðu einhverfra
og tíðni þessa sérkennilega fyrir-
bæris. Er umfjöllun hans í heild
sinni afar jákvæð en dómurinn
birtist í kjölfar sýninga á myndinni
á kvikmyndahátíðinni í Toronto.
Fyrirhugað er að sýna enska gerð
myndarinnar eftir helgi í Háskóla-
bíói og tengist það líkega þeim
mörgu norrænu gestum og öðrum
sem komnir eru víða að á Nordisk
Panorama sem hér verður haldin í
næstu viku. -pbb
Friðriki hrósað í Variety
KVIKMYNDIR Friðrik fær hrós fyrir heim-
ildarmynd í Variety. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Tuttugasta hátíð norrænna
heimildar- og stuttmynda er
hafin í Reykjavík, Nordisk
Panorama, eins og hún er
kölluð, en setning hátíðar-
innar rennur í kvöld saman
við lokahóf RIFF, Alþjóð-
legu kvikmyndahátíðarinn-
ar í Reykjavík. Veisluhöld
íslenskra kvikmyndaáhuga-
manna halda því áfram en
RIFF lýkur ekki sýningum
fyrr en á sunnudagskvöld;
Nordisk Panorama varir frá
föstudegi til miðvikudags í
næstu viku.
Nordisk panorama-hátíðin var síð-
ast haldin í Reykjavík fyrir fimm
árum og setti þá met í aðsókn..
Hátíðin fer milli fimm borga:
Bergen, Oulu, Málmey og Árósar
taka á móti henni milli þess sem
hún kemur til Reykjavíkur. Sam-
tök kvikmyndagerðarmanna standa
fyrir hátíðinni gegnum samnorræn
samtök sín; Filmkontakt Nord, en
þaðan er aðstoðað við dreifingu
norrænna heimildar- og stuttmynda
um heim allan. Þar er stór banki
með verkum norrænna kvikmynda-
gerðarmanna. Bankinn sá er opinn
„online“-dreifingaraðilum um heim
allan. Hefur hann nú verið rekinn í
stafrænu formi í rúmt ár.
Í tengslum við hátíðina er hald-
inn markaður þar sem kaupendur
og söluaðilar koma saman og ráða
ráðum sínum. Á hans vegum er
fjárfestingarmessa þar sem val-
inn hópur framleiðenda kynnir ný
og væntanleg verkefni fyrir ráð-
andi aðilum í kaupum og styrkveit-
ingum, bæði frá Norðurlöndum og
víðar að.
Nordisk Panorama á í harðri
samkeppni við nálægar hátíð-
ir. Það er jú keppikefli hátíða að
frumsýna myndir og umhverfis
okkur er ekki bara RIFF, heldur
líka ein virtasta hátíð á Vesturlönd-
um í Toronto og kvikmyndahátíðin
í Kaupmannahöfn er mikilsverð til-
raun borgar yfirvalda þar, með til-
styrk stjórnvalda til að gera borg-
ina og hátíðina þar að stærstu hátíð
síðari hluta árs á þessum slóðum.
Þá eru ónefndar hátíðirnar í Edin-
borg, Sheffield, Gautaborg og víðar
sem keppa um athygli kaupenda
og söluaðila. Á almannavitorði er
að Nordisk Panorama í Reykjavík
hefur haft sérstakt aðdráttarafl,
sem nær bæði austur og vestur um
haf. Ræður þar bæði lega landsins,
orðspor þess í ferðamannaþjónustu
og landkostum.
Á hátíðinni er mikill fjöldi nýrra
og nýlegra heimildar- og stuttmynda
á dagskrá. Líkt og RIFF er Nord-
isk Panorama flokkaskipt hátíð:
keppt er um nokkra verðlauna-
gripi í ýmsum deildum. Kallaðir
eru til virtir og reyndir fagaðilar
frá löndum austanhafs og vestan.
Fyrir bragðið er talverður hópur á
hátíðinni sem kemur nokkrum sinn-
um saman á ári og deilir þá reynslu
og þekkingu af stöðunni í heimi
stuttmynda og heimildarmynda.
Regnboginn verður aðalvettvangur
hátíðarinnar en bar hátíðarinnar
verður á Íslenska barnum í Póst-
hússtræti og markaðurinn verður
á Hótel Borg.
Aðaldeild á hátíðinni eru heim-
ildarmyndir sem verða nú 21; þar
keppir Draumalandið við aðrar
norrænar myndir. Á stuttmynda-
parti hennar eru fjörutíu myndir til
sýnis, þeirra á meðal stuttmyndin
Anna sem Rúnar Rúnarsson gerði
í Kaupmannahöfn og Sykurmoli,
mynd Söru Gunnarsdóttur; þriðja
myndin er mynd Ragnars Agnars-
sonar, Epic Fail, og mynd Unu Lor-
entsen, Álagablettir.
Í flokki ungra höfunda eru
ellefu myndir. Þá er boðið upp á
ellefu sérstök dagskráratriði.
Nordisk Panorama heldur enn
stöðu sinni sem veigamesta heim-
ildar- og stuttmyndahátíð Norður-
landa þótt ýmis merki séu um að
einn stór styrktaraðili hennar,
Norræni sjónvarps- og kvikmynda-
sjóðurinn, hafi í styrkveitingum
sínum lagt hana til jafns við hátíð-
ina í Kaupmannahöfn, sem mörg-
um þykir gagnrýnivert og fæst
ekki skýrt nema með þjóðerni for-
stöðukonu sjóðsins.
Dagskrá hátíðarinnar er
aðgengileg í nær sextíu síðna
bæklingi og á vef hennar: www.
nordiskpanorama.com.
pbb@frettabladid.is
Nordisk
Panorama sett
KVIKMYNDIR Úr myndinni Hlið við hlið eftir Christian Sønderby Jepsen sem sýnd er
á hátíðinni. MYND NORDISK PANORAMA
Stjórn IBBY á Íslandi hefur
ákveðið að heiðra þrjá listamenn
með því að tilnefna verk þeirra á
Heiðurslista IBBY-samtakanna
2010.
Í flokki myndlistar: Björk
Bjarkadóttir fyrir Allra fyrsti
Atlasinn minn. Í flokki frum-
saminna bóka: Kristín Helga
Gunnarsdóttir fyrir Draugaslóð.
Í flokki þýðinga: Rúnar Helgi
Vignisson fyrir Göngin.
Verkin sem tilnefnd eru verða
kynnt á heimsþingi IBBY sem
haldið verður í Santiago De
Compostela á Spáni 8.-12. septem-
ber 2010. Allar bækur sem til-
nefndar eru á Heiðurslista IBBY
eru hafðar til sýnis á heimsþing-
inu auk þess sem þær fara á far-
andsýningu um víða veröld að
þinginu loknu. Þema IBBY-þings-
ins 2010 er „Strength of Minor-
ities“ og er það opið öllu áhuga-
fólki um barnabókmenntir.
Heiðurs-
listafólk