Fréttablaðið - 25.09.2009, Qupperneq 65
FÖSTUDAGUR 25. september 2009 33
Það er best að segja það bara
strax: Nýja smásagnasafnið hans
Þórarins er alveg hreint sultufínt.
Stíllinn, orðavalið, hugmyndirnar.
Maður, maður. Allt er þetta eins og
það á að vera.
Viðfangsefni Þórarins eru fjöl-
breytt. Flestar sögurnar eru af
þessum heimi en ekki allar. Í mörg-
um er beitt samfélagsgagnrýni
sem ýmist blasir við eða leynist
undir niðri. Bersöglust er Drauga-
borg þar sem peningabrjálæðinu
er lýst. Í Maður einn er fjallað um
innihaldsleysi.
Þórarinn, sem stendur á sex-
tugu, hefur skrifað bækur frá
1974. Í heil 35 ár. Við erum því
farin að þekkja hann ágætlega. Og
sem betur fer ekki bara í gegnum
bækurnar heldur hefur hann við
og við komið fram í útvarpi og
sjónvarpi. Við þekkjum yfirveg-
aðan talandann og svo merkilegt
sem það nú er hefur talandinn sá
lætt sér inn á síður bókanna. Þegar
Alltaf sama sagan er lesin í bólinu
á nokkrum haustkvöldum er sem
Þórarinn sitji á rúmstokknum og
segi sjálfur sögurnar. Ekki ónýtt
það!
Burtséð frá sögunum sjálfum
tekst Þórarni að skemmta lesend-
um með stökum setningum. „Ég
hef alltaf verið Staðarskálamaður,“
er dæmi um slíkt. Látlaus stað-
reynd sem samt segir svo mikið og
vekur umhugsun um ástir á vega-
sjoppum og í þessu tilviki jafnvel
svolítinn söknuð.
Auðvitað eru sögurnar ellefu
í bókinni misgóðar. Bestar eru
Íþróttabyltingin, Draugaborg
og Silla á Klömbrum. Í Stanley-
hamarsheimt er forsagan jafn-
vel betri en sagan sjálf. Ást afa á
hamrinum sem hann fékk að gjöf
í heimsókninni í Stanley-hamra-
verksmiðjurnar í Bandaríkjunum
1963. Sögumaðurinn í Kauða er
skemmtilega fáránlegur náungi.
En sjálfsagt býr eitthvað svona-
lagað í mörgu okkar. Umgjarðir
Hvaðefsögu og Skáldu eru vírað-
ar.
Þarf lokaorð? Ég held ekki. En
það má endurtaka upphafið: Nýja
smásagnasafnið hans Þórarins er
alveg hreint sultufínt.
Björn Þór Sigbjörnsson
Sultufínn Þórarinn á rúmstokknum
BÓKMENNTIR
Alltaf sama sagan
Þórarinn Eldjárn
★★★★
Fjölbreytt og skemmtilegt sagnasafn.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 25. september
➜ Tónleikar
20.30 Bubbi Morthens heldur tón-
leika í Edinborgarhúsinu við Aðalstræti
á Ísafirði. Húsið verður opnað kl. 20.
21.30 Ljótu hálfvitarnir verða með tón-
leika á Kaffi Rosenberg við Klapparstíg.
22.00 Mánar frá Selfossi verða með
tónleika á Græna hattinum við Hafnar-
stræti á Akureyri. Húsið verður opnað
kl. 21.
➜ Opnanir
16.00 Erlendur Bogason opnar ljós-
myndasýningu í gallerý LA (Læknastofa
Akureyrar) við Hafnarstræti 97 (6. hæð).
Sýningin er opin virka dag kl. 9-16.
20.00 Ragnhildur Jóhannsdóttir verð-
ur með opnun á bókverki sínu „konur
30 og brasilíkst“ í Gallerí Crymogæa við
Laugaveg 41. Opið þri.-lau. kl. 13-18.
➜ Tónlistarhátíð
Tónlistarhátíðin Réttir (Reykjavík
Round-Up) stendur yfir til 26.
september. Yfir 100 hljómsveitir og
listamenn koma fram. Allar frekari upp-
lýsingar má nálgast á www.rettir.is og
miðasölu á www.midi.is
➜ Sýningar
Í Tónlistarsafni Íslands við Hábraut 2
í Kópavogi hefur verið opnuð sýningin
„Heilbrigð æska, pönkið og Kópa-
vogurinn 1978-1983.“ Opið alla daga
kl. 11-16.
Í Hafnarborg við Strandgötu í Hafnar-
firði hefur verið opnuð sýningin „Líf-
róður“ þar sem sýnd eru verk eftir
tæplega þrjátíu listamenn sem tengjast
hafinu á ýmsan hátt. Opið alla daga
nema þriðjudaga kl. 11-17 og á fimmtu-
dögum til kl. 21.
➜ Síðustu forvöð
Í Listasafni Árnesinga við Austurmörk
í Hveragerði lýkur sýningu á verkum
Gerðar Helgadóttur og Nínu Tryggva-
dóttur á sunnudag. Opið alla daga kl.
12-18 og aðgangur er ókeypis.
Í Gerðarsafni við Hamraborg í
Kópavogi lýkur tveimur sýningum á
sunnudag. Dyr draumanna, sýning á
verkum finnsku listakonunnar Elenu
Schuvaloff-Maijala. Mandala sýning á
verkum sex íslenskra listamanna. Opið
alla daga nema mánudaga kl. 11-17.
➜ Opið hús
Í tilefni af
100 ára
afmæli
Höfða við
Borgartún
verður
húsið opið
almenn-
ingi til
sunnudags kl. 13-16. Boðið verður upp
á leiðsögn um húsið auk þess sem
þar hefur verið opnuð sýning þar sem
byggingarsaga hússins er rakin er í máli
og myndum.
➜ Námskeið
13.00 Maríanna Friðjónsdóttir heldur
námskeið undir yfirskriftinni „Gulla-
kista Google“ hjá Endurmenntun HÍ að
Dunhaga 7. Námskeiðið er öllum opið.
Skráning og nánari upplýsingar á www.
endurmenntun.is.
➜ Kvikmyndir
Kvikmyndavika tengd kreppu, kakki og
kvótabraski hjá Kvikmyndasafninu til
26. sept. Sýningar fara fram í Bæjar-
bíói í Hafnarfirði. Nánari upplýsingar á
www. kvikmyndasafn.is.
20.00 Sýnd verður kvikmynd Baltas-
ars Kormáks „Hafið“ frá árinu 2002.
➜ Dansleikir
Í svörtum fötum verður á skemmtistaðn-
um Spot við Bæjarlind 6 í Kópavogi.
➜ Listamannaspjall
12.30 Kvikmyndaleik-
stjórarnir Friðrik Þór Frið-
rikson og Ari Alexander
Ergis Magnússon flygja
gestum og ræða um
sýninguna „Ramm-
ar í endursýn“ á
Listasafni Reykjavík-
ur við Tryggvagötu. Spjallið fer fram á
ensku og allir eru velkomnir.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is