Fréttablaðið - 25.09.2009, Page 68
36 25. september 2009 FÖSTUDAGUR
Amie Buck, hin tuttugu og tveggja
ára Newcastle-mær, sem fékk
annað tækifæri til að heilla dóm-
arana í breska X Factor, er ekki
einkaþjálfari eins og hún sagð-
ist vera heldur starfar hún sem
nektar dansmær.
Það var breska göturitið The
Sun sem komst á snoðir um hið
raunverulega starf fröken Buck.
„Sumar stúlkurnar geta þénað allt
að þúsund pund á viku. Amie vinn-
ur oftast um helgar og er ein vin-
sælasta stúlkan á staðnum. Hún er
mjög fær í því sem hún gerir og
hún er vinsæl vegna þess að hún
er bæði falleg og íturvaxin,“ hafði
blaðið eftir kunningja Buck.
Amie Buck varð fræg á einni
nóttu eftir að hún klúðraði lag-
inu Falling eftir Aliciu Keys og
brast í grát á sviðinu. Hún sagð-
ist hafa ætlað að syngja lag með
hljómsveitinni Girls Aloud, en einn
dómaranna, Cheryl Cole, er með-
limur í þeirri hljómsveit. Við þau
orð ákváðu dómararnir að gefa
stúlkunni annað tækifæri til að
heilla þá og steig Cheryl Cole upp
á svið með Buck, henni til halds og
trausts.
X Factor-stjarna
reyndist strippari
GÓÐHJÖRTUÐ Cheryl Cole, dómari í
þáttunum X-Factor, steig á svið með
Amie Buck og stappaði í hana stálinu.
Mutya Buena, fyrrverandi meðlim-
ur hljómsveitarinnar Sugababes,
sagði í viðtali við The Sun að með
brotthvarfi Keishu Buchanan
væri hljómsveitin í raun dauð, en
Buchanan var síðasti upprunalegi
meðlimurinn í sveitinni. „Persónu-
lega finnst mér Sugababes ekki
vera Sugababes lengur. Það hefði
verið öðruvísi ef Keisha hefði
haldið áfram í hljómsveitinni og
einhver annar hefði hætt, þá hefði
þetta enn verið Sugababes,“ sagði
Buena í viðtalinu, en hún sagði
sjálf skilið við hljómsveitina árið
2005.
„Fyrst enginn af upprunalegu
meðlimunum er enn í sveitinni
gætum við allt eins endurvakið
hljómsveitina. Það væri frábær
hugmynd að syngja aftur með
Siobhan og Keishu.“
Endurvekja Sugababes
SYKURSÆTAR Mutya Buena, sem er hér
lengst til hægri, vill endurvekja uppruna-
legu Sugababes-hljómsveitina.
Chynna Phillips, hálfsystir
Mackenzie Phillips, sem sagði
í viðtali við Opruh Winfrey
að hún hafi verið misnotuð af
föður sínum, segist trúa systur
sinni. Hún segist hafa vitað af
misnotkuninni í mörg ár. „Hún
hringdi í mig árið 2007 og sagði
mér að hún og faðir okkar hefðu
átt í ósæmilegu sambandi í tíu
ár,“ sagði Chynna. Hún segir
jafnframt að það hafi verið
mikið áfall að heyra systur sína
segja frá. „Ég trúði henni. Hver
færi að ljúga einhverju svona?“
Móðir Chynnu og fyrrverandi
eiginkona John Phillips, söng-
konan Michelle Phillips, segist
þó ekki trúa sögunni. „Mackenz-
ie er búin að vera heróínfíkill í
35 ár. Hún tók þátt í Celebrity
Rehab og nú hefur hún skrifað
bók. Þetta er allt skipulagt hjá
henni.“
Samband Mackenzie við föður
sinn hefur vakið mikla athygli
fólks, en Mackenzie segir að
misnotkunin hafi byrjað á því
að faðir hennar nauðgaði henni
þegar hún var nítján ára og
staðið yfir í tíu ár.
Chynna trúir
systur sinni
SJÚKUR FAÐIR John Phillips var söngvari
hljómsveitarinnar The Mamas and the
Papas en eiginkona hans, Michelle Phill-
ips, var einnig í hljómsveitinni.
Samkvæmt innanbúðarmönnum
er andrúmsloftið á tökustað
framhaldsmyndar Sex and the
City mjög þrúgandi. Söruh Jess-
icu Parker, sem fer með hlut-
verk Carrie Bradshaw, og Kim
Cattrall, sem fer með hlutverk
Samönthu, er víst svo
illa við hvor aðra að
þær neita að tala
saman. Þar að auki
mun Parker eiga
erfitt með að sam-
ræma vinnutím-
ann og tímann
sem hún vill eyða
með börnum
sínum þremur.
Cattrall er víst
einnig nokk-
uð stressuð
þessa dagana,
sem hefur þau
áhrif að Cynth-
ia Nixon og
Kristin Davis
kvíða því að
mæta í vinnu
hvern morgun.
Enginn vin-
skapur
Grimma kryddið, Mel B, vinnur
nú að því að fá hljómsveitina
Spice Girls saman á ný. Mel vill
fá stúlkurnar til liðs við sig og
leika á einum tónleikum fyrir
Heimsmeistaramótið í fótbolta
sem fer fram næsta sumar í
Suður-Afríku. Allar stúlkurnar,
nema fína kryddið Victoria Beck-
ham, hafa lýst yfir áhuga á að
koma saman í enn eitt skiptið,
en sveitin kom síðast saman árið
2007.
Endurkoma
kryddanna
Danska hljómsveitin Bode-
brixen spilar á tónlistar-
hátíðinni Réttum í kvöld og
annað kvöld. Sveitin hefur
verið sjóðheit síðan hún gaf
út sína fyrstu plötu í fyrra.
Bodebrixen er hugarfóstur þeirra
Andreas Brixen og Aske Bode. Þeir
eru þó ekki einir á báti því á tón-
leikum bætast fimm manns í hóp-
inn þannig að úr verður eitt alls-
herjarpartí. „Við hlökkum mikið
til að spila á Íslandi. Við hoppum
um sviðið og skemmtum okkur og
bjóðum fólki að skemmta sér með
okkur,“ segir Aske.
Þrjú ár eru liðin síðan Bode-
brixen var stofnuð. Þá voru með-
limirnir þrír og áhersla var lögð á
framúrstefnulegan djass. Eftir það
breyttist hún í rokk- og djassbræð-
ingsband. „Við enduðum í poppinu,
ég veit ekki hvernig það gerðist,“
segir Aske við hlátrasköll hinna
sex.
Hljómsveitin hefur spilað á yfir
fimmtíu tónleikum, bæði í heima-
landi sínu og erlendis. Á SPOT-
hátíðinni í Árósum fékk hún mjög
góðar viðtökur við melódísku dans-
poppi sínu, meðal annars frá blaða-
mönnum Mojo og Clash.
Ný plata með endurhljóðblönd-
uðum lögum af fyrstu plötunni og
tveimur nýjum til viðbótar kemur
út 21. október hér á landi á vegum
Smekkleysu. Nefnist hún WHATS-
INSIDESWHATSOUTSIDE og til
að fylgja henni eftir ætlar sveitin
í tónleikaferð um Evrópu á næsta
ári.
Tónleikar Bodebrixen verða á
Batteríi í kvöld klukkan 24.45 en
annað kvöld stíga þessir hressu
Danir á svið á Sódómu á miðnætti.
freyr@frettabladid.is
Úr djassinum í danspoppið
BODEBRIXEN Hin sjö manna hljómsveit spilar á tónlistarhátíðinni Réttum í kvöld og
annað kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI