Fálkinn


Fálkinn - 18.12.1937, Qupperneq 39

Fálkinn - 18.12.1937, Qupperneq 39
F Á L K I N N 35 Haninn, sem á aö drepast: Ef jeg sit kyr hjerna, þá finnur hann mig aldrei. Tillaga um verndunarlæki haiultt knattspyrnudómaranum. — Uss! Sá þykir mjer vera á eftir tirnanum! Hvar hefir þú verið, Kalli litli'? — .leg var að baða mig. Varstu að baða þig með litlum Itlpum eða litlum drengjum? Það veit jeg ekki. Þau voru ekki í neinum fötum. A markaði í Texas var svohljóð- andi tilkynning: — Athygli gesta skal vakin á því, að brunaliðið læl- ur sig engu skifta, þó að eldsvoði verði á markaðsstaðnum! Brunaíiðsmönnunum liafði veriö neitað um ókeypis inngang. Tveir strákar voru að fljúgast á. Sá sem, miður hafði kom sjer und- an og hljóp leiðar sinnar, en sigur- vegarinn stóð eftir háorgandi. Vertu ekki að gráta, drengur minn! sagði kona sem fór hjá. — Þú fæ'rð eflaust annan kunningja í staðinn fyrir þennan. - En aldrei annan eins og hann Árna, snökti drengurinn. — Hann er sonur hans Ólafs í Konfektgerð- i nni. Hvar varst þú í gærkvöldi. Jeg var allstaðar að leita að þjer. Jeg ætlaði á fyrirlestur í Varð- arhúsinu. Um livað var hann? Hann átti að vera um „Hvern- ig maður heldur heilsunni“. En honum var aflýst í þriðja sinni, því að Iyrirlesarinn varð veikur einn sinni enn. Hvers óskar þú þjer í jólagjöf, Elsa min? Mig langar mest í nýjan kjól. — Nýjan kjól. Hefirðu þá ekki hærri hugsjónir? Jú, jeg vildi helst fá nýjan hatt líka. — Hvað getur maður sagt um mann, sem gengur með úrið sitl i bakvasanum? Að hann sje á undan sínum tíma. Það eru hljómleikar i kirkjunni og Tóta gamla fer. Við dyrnar er hún krafin um inngangseyri, en hún verður forviða og segir: — Er seldur aðgangur? Jeg hjelt l)að væri bara offur í kirkjunni og þessvegna hafði jeg enga peninga með mjer. Er konan þín falleg? Já, eins og æfintýrið. - Hvað meinarðu? Hvaða æfin- 1 ýri ? „Einu sinni var —“ Altaf er Olsen jafn heppinn. Um daginn var hann að jeta ostrur og gleypti þá perlu, og þegar hann yar skorinn kom það á daginn, að perlan var svo verðmæt, að hún borgaði kostnaðinn bæði við upp- skurðinn og jarðarförina. Smith hafði orðið stórauðugur vestur í Ameríku og þegar hann var dauður fanst frúnni hún vera vel að því komin að ljetta sjer upp, og fara í skemtiferð til Evrópu. Hún hafði með sjer bíiinn sinn og bil- stjórann og fór nú að aka um „gömlu álfuna“. Einn daginn sprakk hringur á bílnum og bílstjórinn stansaði til að gera við hann. — Hvar erum við núna? spurði Irú Smith bílstjórann. — Við erum miðja vegu milli Bruxelles og Antwerpen. - Æ, jeg kæri mig ekki um að vita um slíka smámuni. í hvaða landi erum við? Skoti kom einu sinni heim til konunnar sinnar og hún var ekki lítið forviða, þegar hann dró upp aðgöngumiða að fjölleikasýningu og gaf henni. — Tarna var fallega gert, sagði hún, —hvað veldur þessu örlæti? Ekkert að þakka, Maggie mín, svaraði hann. - Það sýnir sig þarna töframaður. Jeg ætla að biðja þig að taka vel eftir jjegar kemur að því, að hann býr til tólf eggjakökur úr einu eggi. Skoti nokkur kom til kaupmanns og seldi honum tuttugu hænur. Hann lofaði að láta þær koma klukkan f.iögur um daginn. Á tilsetlum tíma kom sendill með nítján liænur, en sú tuttugasta var ekki með. En klukkan rúmlega sex kom Skotinn sjálfur með þá tuttugustu. — Það drógst hjá yður að koma með síðustu hænuna, sagði kaup- maðurinn. — Já, svaraði Skotinn. — Hún ver])ti svo seint í dag. -— ViljiÖ þjer þá ekki, úr því að jeg svara yður svona vel, segja mjer, hver hefir Ij'Öað á yður hárið, herra dómari? Frúin, utan úr ganginum: Hefir nokkur komið hjerna meðan jeg var úti? — (3, mikil blessun, að þessi bje- aðnr hávaði skyldi hætta. - Hve gömul er hún ung.fr ú Söderblom núna? — Jeg hefi ekki hugmynd u/h það, en þegar við vorum lítil vor- um við jafn gömnl.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.