Fálkinn - 20.07.1960, Page 3
FÁLKINN
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM
Afgreiðsla: Vesturgötu 3,
Reykjavík. Opið kl. 10—12
og IV2—6. — Sími 12210.
Ritstjóri: Skúli Skúlason.
Félagsprentsmiðjan h.f.
^kfaddafaþahkar
Hagfræðingarnir eiga ekki upp á
háborðið hjá þeim „brjóstvitru“ í dag.
Svo hefur raunar verið lengi. Aðal-
gallinn á þjóðinni hefur lengi verið
sá, að svo margir eru svo gáfaðir að
upplagi, að þeir vita allt, án þess að
fræðast um það.
Aumingja hagfræðingarnir! Þeim
er vorkunn, ekki aðeins af því að
þeim brjóstvitru finnst þeir vita svo
lítið, heldur líka af þvi, að flestar
tölurnar, sem þeir þurfa að fást við.
eru svo hryggilegar, að það hlýtur
að vera hátíð að standa í sporum
læknis, sem kryfur úldið lik, hjá því
að standa i sporum hagfræðinganna.
Manntalsskýrslurnar eru eina hugg-
unin, sem þeir hafa: þar er þróun.
sérstaklega í dálknum „óskilgetin
börn“, en hins vegar er það ískyggi-
legt hve margar ungmeyjar giftast
úr landi. Sumar þeirra hafa þó gegnt
borgaraskyldunni áður en þær fóru,
og framleitt íslenzkan ríkisborgara.
afa og ömmu til uppeldis.
En róðurinn þyngist hjá hagfræð-
ingunum, þegar þeir fara að fást við
efnahagstölurnar og alla mínusana.
Og þegar þeir leggja reikningsdæmið
fyrir almenning syngur kór hinna
brjóstvitru margraddað: „Þetta er
lygi! Þeir hafa ekkert vit á þessu!"
-----Það eru mörg ár síðan — heil
þrjátíu ár — að kaldhæðinn og reynd-
ur maður komst svo að orði, að Is-
lendingar yrðu að fá nýja heims-
styrjöld til bess að komast af. Við
fengum hana. Ur þeirri fyrri slupp-
um við án þess að bíða tjón á sálu
okkar. 1 þeirri síðari urðum við fyr-
ir skakkafalli, og árin eftir stríð fyr-
ir öðru enn verra. íslenzk minnimátt-
arkennd hefur fengið lausan taum-
inn — og hefur kostað fé. Vanmáttar-
kenndinni fylgir sjálfsblekking. Litli
maðurinn þykist vera stór. Geta allt.
Nú hafa hagfræðingarnir verið að
leggja niður fyrir þjóðinni hve milúö
hún geti. Og niðurstöður þeirra láta
ekki vel i eyrum spjátrunganna, sem
hróna á strætum og gatnamótum
„Við getum allt!“ Hagfræðingarnir
eru að reyna að eyða moldviðri
siálfsblekkingarinnar. En sá, sem vill
blekkjast og blekkja, vill halda í
moldviðrið sem lengst.
★
ss
:::
:
::í
1
Reyplast-einangrun
Einangrun búin til úr plastefnum hefur nú rutt sér mjög til
rúms sökum ótvíræða kosta fram yfir önnur einangrunarefni.
REYPLAST hefur mun meira einangrunargildi en flest önnur
einangrunareíni, sem hingað til hafa verið notuð.
REYPLAST tekur nálega ekkert vatn í sig og heldur ein-
angrunargildi sínu þó svo að raki eða vatn komist að því.
REYPLAST fúnar ekki né tærist og inniheldur enga næringu
fyrir skordýr eða bakteríugróður.
REYPLAST er léttast einangrunarefna og hefur mestan styrk-
leika miðað við þyngd sína.
REYPLAST er hreinlegt, auðvelt og ódýrt í uppsetningu. Það
má líma á steinveggi með steinsteypu og múrhúða án þess að
nota vírnet.
REYPLAST er venjulega til í mörgum þykktum, og hægt er
að framleiða það með mismunandi styrkleika eftir ósk kaup-
enda.
REYPLAST hefur það mikið einangrunargildi fram yfir önnur
einangrunarefni, að þar sem þörf er fyrir mjög mikla ein-
angrun, svo sem í frystihúsum, kæliklefum og víðar, má
komast af með verulega þynnri einangrun, og vinnst þannig
aukið rúm.
Reyplast einangrunarplötur
eru framleiddar af
REYPLAST H. F.
Söluumboð:
./. /íoí’fíí/i.vvoii A JVorðmann h.f.
Bankastræti 11.
Skúlagötu 30, sími 11280.
Fúlkinn, 24. M. 1960
3