Fálkinn - 20.07.1960, Síða 9
Hin unga ítalska þokkadís Neccia
Cardinale er þegar búin aö ganga
fyrstu skrefin í heimi kvikmyndanna.
Að vísu hægt, en örugglega, og án
allra fegurðarsamkeppna, sýninga og
auglýsingabrellna, sem flestum öör-
um hafa reynzt svo nauðsynlegir
hlutir. Hér sleikir hún sólskinið á
einhverri baðströndinni.
—x—
CHARLES BOYER,
franski leikarinn, segir: „Maður-
inn fer að verða gamall, þegar hann
reynir að skilja konuna i stað þess
að elska hana.
—x—
KIM NOVAK OG JAMES STEWART
kyssast tveggja minútna löngum
kossi í kvikmynd, sem þau léku í ný-
lega. En þegar verið var að taka
myndina, var kossinn 20 mínútna
langur. Þegar kvikmyndastjórinn Ric-
hard Quine horfði á myndina, sagði
hann: „Það er við svona tækifæri,
sem ég iðrast eftir að ég hætti að
leika.“ En James Stewart svaraði:
„Það er við svona tækifæri, sem ég
iðrast ekki eftir að hafa lært að blása
í lúður.“
--V--
Unga stúlkan a mynatnni sýnir okk-
ur hreykin að liún sé ekkert minni
en Eiffelturninn, enda engin furða,
þvi hún er nýbúin að sigra í einhverri
fegurðarsamkeppni í Englandi og
verðlaunin voru ferð til Parísar.
„»»» m'n,t 4
5
MÍNÚTUM
SIR THOMAS BEECHAM,
enski hljómsveitarstjórinn frægi,
þvertekur fyrir að stjórna hljóm-
sveit, ef nokkur kvenmaður er í
henni. „Séu þær fallegar," segir Tho-
mas, „trufla þær hljóðfæraleikarana,
og séu þær ljótar, trufla þær mig.“
—x—
Eilippus drottningarmaður hefur
löngum verið þekktur fyrir að ganga
með hendur fyrir aftan bak og nú
er sonur hans, prinsinn af Wales,
einnig búinn að læra listina. Fólk
um heim allan hefur einnig tekið
eftir því, að hinn nýi fjölskyldumeð-
limur, eiginmaður Margrétar, hefur
einnig hendurnar fyrir aftan bak, að
minnsta kosti á myndum. Ekki œtti
það að vera verra.
Strúturinn hefur misst matarlystina
og hér er verið að athuga, hvort grey-
ið hefur etið eitthvað óhollt ofan í
sinn langa háls. Til þess var notað
sérstakt leitartæki frá hernum, sem
sýndi, að málmstykki sat fast á miðri
leið. Smávegis aðgerð bjargaði svo
strútnum og matarlystinni.
—x—
LÖGG EFTIR!
Þjóðverjinn Harald Leib var stadd-
ur á Hollandsströnd, er hann hafði
ekið fyrstu 100.000 kílómetrana á
bílnum sínum. Til að minnast þessa
atburðar, drakk hann flösku af rínar-
víni, setti í hana miða og fleygði
henni í sjóinin. Þetta var í ágúst, en
3. október fann norskur bóndi flösk-
una rekna. Hann tilkynnti sendand-
anum flöskufundinn, en lét þess get-
ið um leið, að næst þegar hann sendi
sér flöskupóst, yrði hann að láta dá-
lítinn leka vera eftir í flöskunni.
—x—
PRÓFESSORALAUN.
I blaði einu í háskólabænum Ox-
ford stóð þessi auglýsing nýlega:
„Maður óskast til að selja bjúgu frá
vagni. Kaup 14 sterlingspund á viku.
En prófessorarnir í borginni eru nú
að velta fyrir sér hversvegna þeir
hafi verið að mennta sig, því að þeir
mundu hafa fullt eins mikið upp úr
því að selja bjúgu, og til þess þarf
ekkert undirbúningsnám.
Trvklofiinarhrtiigir
ljósir, rauðir. — Steinhringar fyrir dömur og herra. —
Hálsmen, armbönd, gull og silfur. — Borðbúnaður, silfur,
plett. — Úr fyrir dömur og herra, gull og stál.
Tegundir: Marvin, Dames, Tissot, Certina, Etema.
Laugavegi 50. — Reykjavík.
Fálkinn, 24. tbl. 1960
9