Fálkinn - 20.07.1960, Qupperneq 31
£krítlur
Dómarinn: ■— Hvers vegna notuð-
uð þér ekki skammbyssu, heldur boga
og ör, úr því að þér ætluðuð að drepa
manninn yðar?
Frúin: — Það var orðið svo íram-
orðið, að ég vildi ekki vekja börnin ...
★
Maður uppi í Mosfellssveit var sak-
aður um þjófnað og fór í kaupstað
til að fá lögmann sem verjanda.
— Eigið þér peninga til að borga
mér þóknunina? spurði lögmaðurinn.
— Ónei, en ég á tvo grísi, fjórar
hænur og byssu.
— Jæja, það nægir fyrir þóknun-
inni. Hvað er það, sem þér eruð sak-
aður um að hafa stolið?
— Einn grís, fjórar hænur og
byssa.
★
Canadisku hjónin voru í fyrstu
langferðinni á æfinni. Þegar þau
höfðu ekið lengi hafði lestin viðstöðu,
og þau kölluðu út um gluggann til
stöðvarstjórans og spurðu hvað þessi
stöð héti.
— Saskatoon í Saskatchewan, svar-
aði hann.
— Guð hjálpi mér! dæsir konan.
— Við erum þá komin svo langt, að
þeir tala ekki einu sinni ensku hérna!
Frú Frímann: — Maðurinn minn
hefur breyzt mikið síðan við gift-
umst. Nú lepur hann úr lófa mínum.
Frú Blámann: — Það sparar yður
ekki smáræðis þvott.
★
— Eldurinn er uppgötvaður, lijólið og
öxin. Ég fæ ekki séð annað en allt
sé fundið, sem hœgt er að finna.
★
Sameigendur firmans Brask & Co.
höfðu tekið sér frí og fóru að spila
golf. Þegar hæst fram fór andvarpar
annar þeirra og segir:
— Nú fór í verra! Ég hef gleymt
að læsa peningaskápnum.
— Gerir það nokkuð til? sagði hinn.
— Ég er hérna lika.
★
Fallegir eða ekki fallegir — þetta
eru því miður einustu skórnir í verzl-
uninni, sem eru nógu stórir.
Hvað segir ekki Kierkegaard — nei,
það var víst Shakespeare — eða
var það Goethe?
★
Gamanleikarinn Groucho Marx hef-
ur ákaflega gaman af „baseball“, og
eitt sinn, er hann hafði séð tvær
stúlkur að leik, sagði hann:
— Nú hef ég horft á „baseball" i
mörg ár, en þetta er i fyrsta skipti,
sem mig hefur langað til að kyssa
ytri hægri.
★
★
Ágúst gamli í Holti hefur unnið
lengi hjá Johnsen útgerðarmanni og
alltaf fyrir sultarkaup. Svo fær hann
magasár og verður að leggjast á spít-
ala og læknirinn sker úr honum hálf-
an magann. — Þegar hann loksins
er orðið það hress, að hann fer að
vinna aftur, spyr Johnsen, hvernig
honum líði.
— Nú ætti það að ganga vel hér
eftir og hægara að bjarga sér, því að
nú er maginn kominn í samræmi við
kaupið, svaraði Ágúst.
★
— Heyrðu, hvernig á ég að fara að
kenna ungri stúlku að synda?
— Þú leggur handlegginn um mitt-
ið á henni og segir...
— Þetta er hún systir mín, skil-
urðu...
— Nú, það var annað mál. Þá ferðu
bara með hana fram á pallinn og
hrindir henni út í.
★
Viljið þér ekki láta hundinn út fyrir?
Fálkinn} 24. tbl. 1960
Hefnd!
31