Fálkinn - 20.07.1960, Síða 33
Seigiir er
Nú er hann kvæntur í ellefta sinn,
hann riki Thomas Manville, og hérna
sjáiS þið hann og 11. konuna. Hann
er 65 ára, hún 20. Lengst hefur hann
lafað saman við sömu konuna í tiu
ár, en stytzta hjónabandið stóð 7
tíma 35 mínútur.
,,Ég er eins konar Henrik VIII.,“
segir Tommy, „munurinn er bara sá,
að hann lét stúta konunum sínum,
en ég borga þeim svo höfðingleg eft-
irlaun, að þeim þykir ánægja að
skilja við mig.“ Og þetta segir hann
dagsatt.
Fyrsta konan hans var dansmær í
Ziegfield-ballettinum 1911. Tommy
var 16 ára þá, varð bráðástfanginn
og nam stúlkuna á brott með sér, en
asbestkonungurinn pabbi hans reidd-
ist og gerði strákinn Tuma arflaus-
an. Þetta hjónaband stóð tíu ár en þá
skildi Tommy við konuna og var tek-
inn í sátt aftur hjá föður sínum.
Næsta konan var einkaritari hans
en fékk skilnað fyrir „andlega
grimmd“. Árið 1931 kynntist Tommy
nýrri Ziegfieldmeyju í samkvæmi
hjá prinsinum af Wales, og giftist
henni í snatri. En tveim árum síðar
sá hann Evuklædda meyju á stripl-
ingasýningu og linnti ekki látum fyrr
en þau voru gift. Fimmta konan varð
dansmærin Bonny Edwards 1942 og
tveim árum siðar varð Billy Boze frú
unum greip i mig: — Eru fleiri lif-
andi þarna niðri?
—í námuganginum sem ég var
í, eru allir dauðir, sagði ég. Kon-
urnar kringum mig stundu. Margar
féllu í ómegin. Gangurinn fyrir inn-
an var hruninn og vatnið streymdi
inn í hann.
Ég hneigð niður áður en þeir lögðu
mig á sjúkrabörurnar. Það eina, sem
ég man, eru orð konunnar minnar:
— Lof sé guði, að þú ert lifandi!
En mér skildist þá þegar það, sem
allir vita í dag: að 434 námumenn
týndu lifi þennan dag, og að ég var
sá eini sem bjargaðist.
★
..ToilllllT”
Manville nr. 6. Nr. 7 varð 19 ára
stúlka, gullfalleg, sem hét Sunny
Ainsworth, en það hjónaband slitnaði
eftir 7 tíma 35 min. Hún fékk milljón
dollara fyrir vikið, og þótti borgun-
in rausnarleg. Nr. 8 var blaðritari;
hún hafði talsvert tangarhald á
Tommy og þau löfðu saman í 7 ár.
En þá varð hann gagntekinn af
ágætri sólódansmær, og síðan enn
einni Ziegfieldstúlku.
Nýja konan var frammistöðustúlka
nÁÐJVÍJVGAli
SVAR viö HEILABROTI: 1 þessu
tilfelli 16 496 — og draga frá töluna
373. Þá kemur út talan 16 123. Hún
segir þetta: Stúlkan er fædd 16. 1.
(þ. e. 1. janúar) og er 23 ára gömul.
SVAR við „MANSTU ÞETTA?“:
1) Mozart, 2) Franskur dans í 4/4
takt, 3) Merkúr, 4) Frægur enskur
málari, 5) Ánorðvestanverðum Vatna-
jökli, 6) Alexander mikli, 7) Páfinn
í Róm, 8) 65%, 9) Jeanne d’Arc, 10)
Sigurður Jónasson.
þegar Tommy kynntist henni, en áð-
ur hafði hún verið við afgreiðslu i
ostabúð. Það þykir talsvert liklegt,
að henni haldist lengi á Tommy, eða
honum á henni, því að hún hefur æf-
ingu í að vera innan um gamalosta.
★
Grunsamlega brjósta-
miklar
Hópur ballettmeyja var á leið frá
Mexíkó ásamt'stjórnanda sínum, en
þegar kom að landamærunum, þótti
tollvörðunum þær grunsamlega
brjóstamiklar. Fararstjóri þeirra
sagðist vera á leið til New York með
stúlkurnar og sýndi samning við
glaumbæ einn þar í borg og benti
tollheimtumönnum á, að slíkum stöð-
um vildi fólk ekki sjá nema brjósta-
miklar stúlkur, á við Marilyn Mon-
roe. Samt létu tollverðirnir sér ekki
segjast og fóru að þukla á stúlkun-
um. Kom það þá á daginn, að þær
voru allar með gerfibrjóst, sem kóka-
ín var falið í, og hirtu tollverðirnir
þarna eitur fyrir 300.000 dollara.
☆
Ilún er búkona ]>essi unga brúöur, sem settist undir beljuna þegar hún
kom frá altarinu, og mjólkaði hana, svo að brúöhjónin gœtu skálaö fyrir
sjálfum sér í spenvolgri nýmjólk.
Fálkinn, 24. tbl. 1960
33