Fálkinn - 21.03.1962, Side 6
PANDA □□ LANDKONNUÐURINN MIKLI
„Ég er anzi hræddur um; að þessi flugvél sé heldur
stór“, sagði landkönnuðurinn. „Ég vildi heldur fá
eitthvað minna í skiptum fyrir bílinn minn.“ „Þið
eigið bíl til þess að skipta“, sagði sölumaðurinn,
„leyfið mér að líta á hann fyrst.“ Hann hristi höfuðið,
þegar hann skoðaði nánar jeppann. „Hann er ekki
mikils virði“, sagði hann. „Stór blettur á honum og . ..
óhemju drullugir hjólbarðar.“ „En sú vandræði", sagði
landkönnuðurinn vonsvikinn. „Ef þú vilt hann ekki,
ætla ég . . .“ „Bíddu augnablik“, greip sölumaðurinn
fram í fyrir honum. „Ég skal láta þig fá frábæra litla
flugvél fyrir slitna farartækið þitt.“
Sölumaðurinn klappaði flugvélinni allri. Samt sem
áður stanzaði hann, þegar nokkrar skrúfur hrukku
úr vélinni. „Mjög traust og áreiðanleg vél“, sagði
hann. „Ég mun alls ekki þola að missa hana.“ „Ég
vissi ekki, að jeppinn okkar væri svona gamall“, sagði
Panda. „Gamall“, sagði sölumaðurinn og greip hann
á orðinu, næstum of gamall til þess að fara með hann
á öskuhaugana.“ Aloysius frændi hafði fylgt þeim
Panda eftir, læddist nú hljóðlega inn í garðinn. Hann
var enn þá í hefndarhug. Þegar hann sá jeppa land-
kannaðarins, fylltist hann heift. Hann greip hamar,
sem nærri var og hljóp við fót áleiðis að jeppanum.
Landkönnuðurinn og sölumaðurinn luku viðskiptun-
um. „Fyrsta flokks skipti, herrar mínir“, sagði sölu-
maðurinn gleiðbrosandi. „Þessi fallega flugvél í stað-
inn fyrir þriðjaflokks jeppa.“ „Já, ég veit“, sagði land-
könnuðurinn og fitlaði óþolinmóður við stjórntækin.
„Það væri betra að þú ýttir svolítið á mig. Startarinn
virðist ekki starfa of vel. „Sölumaðurinn greip í stél-
ið og ýtti henni svolítið áfram. Og Panda og land-
könnuðurinn voru allt í einu komnir á loft. Kaup-
maðurinn virti ánægður flugvélina fyrir sér og þá
barst honum ókunnugt hljóð til eyrna. Hann sneri
sér við og sá ókunnugan mann í óða önn að berja
jeppann hans með hamri.
6 FÁLKINN