Fálkinn - 30.05.1962, Page 4
séð & heyrt
Guðinn
Pat Boone er guð tánunganna í Bandaríkjuniun, mæður vilja eiga
syni sem hann, tengdamæður tengdasyni og ógiftar konur vilja
giftast manni sem honum, en eiginmenn fá slæma samvizku, er þeir
sjá hann. Þessi mynd er tekin af honum, þegar hann var viðstaddur
frumsýningu í Lundúnum ásamt eiginkonu sinni.
Fordæmi
Hinn kaþólski prestur, John Donlon, synti
um 30 km. leið frá eynni Vancouver til Banda-
ríkjanna til þess að afla fjár í æskulýðs-
heimili. Meðal fjöldans, sem beið á strönd-
inni eftir honum, var safnað fé til hússins.
Auk þess fékk presturinn talsvert í aðra
hönd, þar sem sundinu var sjónvarpað og útvarpað. Hvernig væri,
að íslenzkir prestar og safnaðarmenn fylgdu fordæmi þessa kaþólska
prests, er þeir safna fé í nýjar kirkjur?
Allt er gott þegar endirinn er góður
Húsmóðir nokkur fór út af heimili sínu
til þess að fara í búðir. Hún hafði skilið eftir
heima óhrein föt fyrir framan þvottavélina
og auk þess var hin sjálfvirka brauðrist í
sambandi og stóð á þvottavélinni. Litlu seinna
flugu tvær brauðsneiðar upp úr brauðrist-
inni og ofan í balann með fötunum. Það
kviknaði þegar í fötunum, en það var þó lán
í óláni, að logarnir bræddu vatnsslöngur þvottavélarinnar, þannig
að vatnið fossaði niður í balann og slökkti eldinn.
Allir vegir liggja til Chicago
Chicago er höfuðstaður járnbrautanna. Það liggja hvorki meira
né minna en 38 brautir inn í borgina. Og sporbrautirnar eru svo
margar inn í borginni, að þær gætu myndað tveggja spora braut
þvert yfir Ameríku, frá Kyrrahafsströndinni til Atlantshafsstrand-
arinnar.
lagði rafmagnsrakvélina
Bernhard prins af
Hollandi hefur um
langa hríð dvalizt
í Tanganyika, þar
sem hann unir sér
vel við búskap. En
hitinn þar syðra
gerði hann svo latan
að hann nennti ekki
orðið að raka sig,
á hilluna og fór að
safna skeggi.
Um daginn kom hann þannig fram á frétta-
mynd, sem birt var í blaði í Hollandi og
skömmu síðar fékk hann bréf frá Júliönu
drottningu: — Kæri Bernhard. Þú skalt ekki
voga þér að sýna þig hér heima fyrr en þú
hefur rakað þetta skegg af þér.
V erzlunarmaður
sem ekki fylgdi
ráðum Kennedys
forseta um að skipta
ekki við Kúbu,
meðan Castro væri
við völd, skrifaði
viðskiptavini sínum
þar og fékk til baka
bréf, sem endaði
samkvæmt fyrirmælum Castrós: Allt fyrir
byltinguna. Lifi hin sósialitska bylting. Föður-
landið eða dauðinn. Við sigrum.
Minnir þetta ekki óneitanlega á kveðju-
orðin: Heil Hitler.
★
Menn vorkenna
mjög Beaverbrook
lávarði. Eins og
kunnugt er berst
hann með oddi og
egg gegn inngöngu
Bretlands í Markaðs
bandalagið. Einn lið-
ur í baráttunni var
það, að hann lét
bíla með skilti á aka um götur Lundúna. Á
skiltunum stóð: — Heimsveldið fram fyrir
Markaðsbandalagið.
En menn gátu ekki varizt brosi, þegar þeir
sáu, að bifreiðarnar, sem skiltin stóðu á, voru
hinir vinsælu þýzku alþýðuvagnar, Volks-
wagen.
★
Hver skyldi vera
ríkasti kvikmynda-
leikari í Holliwood
um þessar mundir?
Svo er sagt, að það
sé Gregory Peck.
Hann hefur nefni-
lega fengið 10%
ágóðahlut af kvik-
myndinni Byssurn-
ar í Navarona, sem væntanlega verður sýnd
hér á landi innan skamms.
Hingað til hefur verið dágóður hagnaður
af myndinni og um 5 þúsund kvikmyndahús
hafa pantað hana, svo að enn mun fé streyma
í vasa Gregory Peck.
FALKINN
4