Fálkinn - 30.05.1962, Qupperneq 7
Úrklippur.
Vikublaðið Fálkinn. —
Þegar ég sá auglýsinguna um
úrklippusendinguna, datt mér
í hug, að ég gæti kannski orðið
mér út um aukajobb með
heimilisstörfunum. Ekki sízt
þar sem fyrirvinnan var að fá
uppsagnarbréf frá Útgerðar-
félaginu, þá er gott að fá eitt
og eitt blað fyrir lítið, því
Fáikinn verður keyptur, þar
til nokkur peningur er til.
Ég flyt svo blaðinu þakkir
fyrir gott efni og sérstaklega
prýðilega framhaldssögu og
skemmtilegar úrklippur.
Vinsamlegast.
S. H.
Svar:
Viö þökkum kærlega fyrir
allar úrklippur, sem okkur eru
sendar, en vitaskuld veljum viö
aöeins þær beztu úr. Sendi
margir sömu úrklippuna, fá
þeir blaöiö, sem fyrstir senda
hana.
Astró.
Kæri Fálki. — Getur þú
sagt mér, hvað það kostar að
láta Astró spá í stjörnurnar
fyrir mig. Óska sem fyrst
eftir svari. Ö.
Svar:
Ef spáin birtist í blaöinu,
kostar spádómurinn ekki neitt.
Hins vegar kostar spáin 200 kr.,
ef bréfritari áskar þess, aö
spáin komi beint í liendur hon-
um. AthugiÖ, aö skýrt skal tekiö
fram, hvenœr viökomandi er
fæddur og livenœr sólarhrings.
Eiwnig skal greina frá fæöingar-
stund og degi þeirra persóna,
sem viökomandi vill fá upplýs-
ingar um.
Ég get bætt því við, að margir
eru þeir orðnir, sem hafa
snúið baki við vissu viku-
blaði, einungis vegna mynda
og auglýsinga fargs. Og svo
að lokum vona ég, að þið
herjið ekki um of á lesendur
með slíku. Græðgi í hófi er
ágæt. H. A. H.
Svar:
Aö jafnaöi höfum viö gætt
þess, aö hafa visst hlutfall milli
mynda og texta ásamt auglýsing-
um. Myndir eru texti út af fyrir
sig og þær gera mikiö til þess
að lífga upp síöurnar. Ef mynd-
irnar ykju ekki gxldi blaösins,
heföum viö þaö myndálaust.
HvaÖ framhaldssögunni viövik-
ur, þá birtist einn kafli úr sög-
unni í hverju blaöi og hvorki
meira né minna.
Hvernig eiga ungar stúlkur
að vera.
Kæra pósthólf. — Okkur
langar til að skrifa þér um
vandamál, sem margar ungar
stúlkur vildu gjarna fá upp-
lýst.
Ung stúlka, sem er á dans-
leik, situr hjá alla dansana,
þó að hún sé bæði lagleg og
smekkleg til fara. Hún situr
kannski hjá vinkonum sínum,
og piltarnir þyrpast utan um
þær, en skipta sér lítið af
henni. Hvers vegna skipta
piltarnir sér ekki af henni?
Okkur langar þess vegna að
bera fram tillögu um að þið
spyrðuð nokkra unga pilta
um álit þeirra á málinu. Þið
getið birt samtölin og þar
með fengið ljómandi efni í
blaðið. Svo væri skemmtilegt
að vita, hvernig piltarnir
vilja hafa stúlku ársins 1962.
Þakkir Fálki flyt ég þér
fyrir sögur handa mér.
Ef viltu bréfið birta hér
burtu frá þér ei ég fer.
Dó. og Jó.
Svar:
Framhaldssagan.
Kæri póstur. — Þar sem ég
hef tekið upp þann sið að
kaupa Fálkann, get ég ekki
staðizt þá freistingu að setja
svolítið út á það, sem mér
finnst vera það bezta í blað-
inu. Á ég þar við framhalds-
söguna. Hún er afbragð en
of stutt hverju sinni. Finnst
mér myndafargið i kringum
hana einum of mikið. Að öllu
skammlausu mætti sleppa
þeim. Ég álít að lesendur, sem
hafa fylgzt með sögunni, hafi
þegar mótað sér sögusvið og
æski því fremur eftir lesmáli
í stað þeirra góðu mynda.. .
Kannski eru piltarnir í þessu
plássi eitthvaö ööruvísi en strák-
ar álmennt gerast. Og ef til vill
eru þeir bara hræddir viö stúlk-
una, af því aö hún er laglegri
og smekklegri en hinar. Viö
beinum því til pilta í þessu
plássi aö þeir svari spurningu
þessara stúlkna og enn fremur
aö þeir láti í Ijós, hvernig þeir
vilja hafa stúlku ársins 1962.
Nýja framhaldssagan.
Um leið og ég þakka allar
þær ánægjustundir, sem ég
hafði, þegar ég var að lesa
Gabrielu, vænti ég þess, að
næsta framhaldssaga verði
ekki síðri... J. J.
FÁLKINN 7
I