Fálkinn - 30.05.1962, Page 15
bregðum okkur jyrst á æfingu hjá Val, tök-
u'm myndir af hverjum einstökum leikmanni
og birtum nokkrar upplýsingar um hann. Síð-
ar munu hin félögin koma, hvevt af öðru.
Valur er yngstur Reykjavíkurfélaganna (að
Þrótti undanskildum) og þó kominn nokkuð
til ára sinna. Hann átti fimmtugsafmæli 11.
maí 1961. Valur hefur tekið þátt í íslands-
móti meistaraflokks samfleytt frá 1915. I
skýrslu, sem tekin var saman á fimmtugs-
afmœlinu 1961, höfðu þeir leikið 160 leiki
í mótinu, unnið 76, gert 34 jafntefli og tap-
að 50 leikjum. Markatalan er 360:294. Tólf
sinnum hefur Valur orðið íslandsmeistari í
knattspyrnu, fyrst 1930, en síðast 1956. Valur
hefur átt mörgum snjöllum leikmönnum á
að skipa og mœtti nefna t. d. Albert Guð-
mundsson, Sigurð Ólafsson, Hermann Her-
mannsson, Grímar Jónsson, Frímann Helga-
son, Ellert Sölvason, Halldór Halldórsson og
fleiri. Sá ma'ður, sem lengst hefur keppt, er
Sigurður Ólafsson, alls 202 leiki. Næstur er
Ellert Sölvason með 180.
Núverandi þjálfari Vals er Óli B. Jónsson,
sem verið hefur þjálfari K.R. í mörg ár. (Sjá
mynd hér til hœgri).
Steingrímur Dagbjartsson er 20 ára nemi í
járnsmíði. Hann hefur stundað knattspymu
frá því að hann var 12 ára og verið síðustu
2 ár í meistaraflokki. Hann er hægri útherji.
Björgvin Daníelsson er 24 ára, prentari að
atvinnu. Hann hefur stundað knattspyrnu frá
barnæsku og keppt síðustu sjö árin með Val.
Hann leikur miðframherja.
Þorsteinn Friðþjófsson er 22 ára, bílstjóri að
atvinnu. Hefur stundað knattspyrnu frá 1950
og keppt í meistaraflokki frá því að hann var
17 ára. Hann er vinstri bakvörður.
Sigurjón Gíslason er 25 ára og stundar nám
í Vélskólanum. Undanfarin sex ár hefur hann
leikið í liði Hafnfirðinga, en er nú nýgeng-
inn í Val. Hann leikur stöðu mið framvarðar.
Bergsteinn Magnússon er 21
árs og húsasmiður að atvinnu.
Hefur verið síðustu 4 ár í m.fl.
sem hægri innherji.