Fálkinn - 30.05.1962, Síða 26
kvenþjóðin
rit'ijori
KRISTJAIMA
STEINGRÍMSDÓTTIR
'Jaileyir tfœtur
ufff Aumarii
Nú fer að nálgast sá tími
ársins, þegar fjöldi kvenna
njóta þess að ganga berfættar
í stuttbuxum eða í sundbol-
um við laugar eða í sólbaði.
En þær eru þó án efa enn
fleiri, sem finnst þær ekki
geta sýnt sig svona léttklædd-
ar vegna þess að fótleggirnir
séu svo loðnir, með gæsahúð,
með feita ökla o. s. frv.
En við þessu má ýmislegt
gera og með góðum árangri,
sé byrjað í tíma.
Óþarfa hárvöxt má fjar-
lægja á tvennan hátt:
1. Með því að nota hárfjar-
lægjandi krem, sem fæst í
flestum snyrtivöruverzlunum.
Þessu kremi er aðeins smurt
á þar sem þörf er, látið liggja
á í nokkrar mínútur (fylgið
leiðarvísi), síðan þvegið af
með volgu vatni .... hárin
fylgja ’með. Alveg sársauka-
laus og lyktarlaus meðferð,
sem til að byrja með þarf að
endurnýja á nálega mánað-
ar fresti, en seinna með lengra
millibili, því að kremið hefur
eyðileggjandi áhrif á vöxtinn,
svo hann verður hægari eftir
því sem frá líður.
2. Dökk hár lýsast og
minnka við þessa meðferð:
Hrærið saman jöfnum hluta
af brintoverilte (H2O2 20%),
salmiak og glycerin með magn
esíu, svo myndizt linur graut-
ur. Smurt á fótleggina með
bómullarhnoðra. Látið full-
þorna, núið af með þurri bóm-
ull. Berið síðan mýkjandi
krem á fótleggina. Endurtek-
ið 2—3 í viku eða eins oft og
hörundið þolir það.
Gæsahúð á oft rætur sínar
að rekja til þess að hörundið
er þurrt, sem orsakast af A
og B vitaminskorti í hinni
daglegu fæðu. En úr því má
bæta með því að gleyma ekki
matartegundunum, svo sem
gulrótum, lifur, lýsi, feit-
um fiski, rúsínum, sveskjum,
aprikósum, heilmöluðu korni,
í fæðið. Þá ætti gæsahúðin að
skána.
Núið auk þess inn í hörund-
ið 1 til 2 í viku olíu og farið
í volga kerlaug. Auk þess er
ágætt að nudda gæsahúðina
með pimpsteini, sem dyfið
hefir verið í sápuvatn. En far-
Framh. á bls. 35.
hfýeiti
faauÍA
lehtfja
Piedeig;
100 g smjörlíki
2 dl. hveiti.
1—2 msk. kalt vatn.
Ögn af salti.
Fylling:
2 tómatar.
6 ostsneiðar.
Kryddsíld.
3 harðsoðin egg.
1 laukur.
2 msk. smjör.
(Rjómi).
2 msk. smjörlíki.
IV2 msk hveiti.
1—IV2 dl mjólk.
Rækjur.
Smjörlíkið saxað saman við
hveitið með hníf, vatninu
blandað saman við. Deigið
hnoðað léttilega, verður seigt
ef það er hnoðað of lengi. Lát-
ið bíða á köldum stað. Flatt
út í aflanga köku. Brotið
Frh. á bls. 35