Fálkinn - 30.05.1962, Side 33
hvað væri að. Bulder var varðhundur
og vaknaði við minnsta hávaða og
einnig þá er síminn hringdi. Maður-
inn minn kom inn í stofuna og spurði
hvað væri að og ég sagði honum að
hjónin í húsinu hans afa sáluga hefðu
hringt aftur og kvartað undan hunds-
ýlfri allar nætur. Eiginmaðurinn sagði
að þessu yrði fljótlega að kippa í lag.
Hálfri stundu síðar, þegar Bulder
var sofnaður frammi í forstofu, tók
maðurinn minn símann og hringdi út
til hjónanna í húsinu hans afa sáluga.
Þegar svarað var í símann, sá ég strax,
að maðurinn minn var ekki jafn róleg-
ur og venjulega. — Já, heyrði ég hann
segja, nú skil ég hvers vegna þér
getið ekki sofið. Bíðið augnablik. Hann
rétti mér tólið og ég heyrði hvernig
hundur ýlfraði, svo að það smaug í
gegnum merg og bein. Ég hef aldrei
heyrt svona ónotalegt ýlfur á ævi
minni.
Meðan ég hélt á tólinu, gekk mað-
urinn minn fram í forstofuna og kall-
aði á Bulder. Hann vaknaði strax og
kom hlaupandi. Á sama augnabliki
hætti ýlfrið.
Maðurinn minn skýrði frá því, hvað
gerzt hafði og næsta dag fórum við
út í húsið hans afa sáluga og höfðum
Bulder með. Um leið og opnað var
fyrir okkur þaut Bulder inn um dyrn-
ar og snuðraði í hverju horni í öllum
herbergjunum. Að lokum kom hann
til okkar, settist rólegur fyrir framan
okkur og leit hryggur á okkur.
Eftir þetta heyrðist aldrei hunds-
ýlfur á nóttunni í húsinu hans afa
sáluga.
K. R.
KATItí N
Frh. af bls. 24.
hafði ekki getað varið sakleysi sitt á
neinn hátt. Hún átti á hættu að vera
lögð í járn og kastað niður í rottukjall-
arann.
Hún lá lengi grafkyrr og hlustaði á
storminn fyrir utan. Ljósin voru slökkt
í þessum hluta borgarinnar. En í öðr-
um hluta Lundúnaborgar skinu krist-
alsljósakrónur yfir höfðum ungra og
gamalla, sem fögnuðu komu vorsins ár-
ið 1813. Mest voru hátíðahöldin á Carl-
ton House, þar sem prinsinn ásamt ást-
mey sinni lafði Jersey, hafði safnað í
kring um sig öllu unga fólkinu sem
var af tignum og virðulegum ættum.
Hertoginn var ekkert sérlega vinsæll,
Kæri Astró.
Ég er fædd kl. 23.30. Ég
stunda nú nám í þriðja bekk
í menntaskóla, en síðastliðið
sumar vann ég við skrifstofu-
störf. Ég er ekki mikið gefin
fyrir skemmtanir, en hef
gaman af að lesa.
Nú langar mig til að vita
eitthvað um framtíðina, hvort
ég giftist seint eða snemma,
um heilsufarið, peningamálin
og hvort mér gefst tækifæri
á að sjá mig um í heiminum,
og einnig annað sem lesið
verður úr stjörnunum.
Viltu gera svo vel að sleppa
fæðingardegi og stað.
Með hjartanlegu þakklæti
fyrir væntanlegt svar, sem ég
bíð óþreyjufull eftir og vona
að komi fljótt.
Hilda.
j
Svar til Hildu:
Þú fæddist þegar Sól var
tíu gráður í merki Ljónsins
og er það því nefnt sólmerki
þitt. Þessi staða Sólarinnar
bendir til að þú sért gædd
metnaði og viljir komast á-
fram í heiminum. Þú hefur
einnig yfir að búa hæfileika
til að stjórna öðrum og mun
það fara þér vel úr hendi. Þú
hefur ánægju af börnum og
hefur furðu næman skilning
á þeim. Hins vegar hættir þér
eins og öðrum, sem fæddir
eru undir merki þínu, til að
vera uppstökk sérstaklega ef
þér finnst hlutur þinn þrengd-
ur eða athafnasvið þitt tak-
markað á einhvern hátt.
Hætt er við að þú verðir aldrei
fullkomlega hamingjusöm í
ástamálunum, því erfitt er að
finna maka utan Ljónsmerk-
isins, sem geldur jafn heita
ást og merki þitt gerir. Af
þessu leiðir því að þeir, sem
hér eru fæddir eru vansælir
í hjónabandi.
í fjórða húsi þínu stendur
Satúrn og hefur hann nokkuð
erfið áhrif á heimilislíf þitt
og hætt er við að þú njótir
þess ekki sem skildi. Heimilis-
ábyrgðin hvílir að öllum lík-
indum nokkuð þungt á þér og
hún kann að nokkru leyti að
trufla hjónabandshamingju
þína.
Það eru mjög athyglisverð-
ar afstöður í merki Tvíbur-
anna, þar sem fjögur himin-
tungl voru stödd á fæðingar-
stund þinni. Þau voru Mán-
inn, Mars, Úranus og Venus.
Svo vill til að Máninn er þín
áhrifaplánetaa og er því beyti-
leiki og eirðarleysi nokkuð á-
berandi í fari þínu. Staða
þessara pláneta í Tvíbura-
merkinu bendir til að þú eig-
ir auðvelt með að skilja hlut-
ina og sért góðum skilnings-
gáfum gædd. Tvíburamerkið
er flokkað undir svonefnd
„intelligence“ merki og þeir,
sem hafa sterkar afstöður þar
eiga auðvelt með nám, lestur
bóka og að skilja hlutina, svo
fremi að aðrar afstöður spilli
ekki fyrir. Samt sem áður ein-
kennist fólk þessa merkis af
eirðarleysi, sem er að miklu
leyti einkenni hugans, sem
alltaf er á ferð og ekki tekur
sér hvíld nema í djúpum
svefni. Það er því einnig á-
berandi hjá þessu fólki, að
það hefur dálæti á ferðalög-
um, sem taka stuttan tíma,
ekki langferðalögum, þau
mundu þreyta það. Allt sem
er stutt og laggott, hentar því
vel. Venus þarna bendir til að
ástamálin munu verða á flest-
an máta tengd námi þínu,
þannig að þar mun vera maka
þinn að finna, einnig að þú
verðir ekki við eina fjölina
felld í þeim efnum. Aðstöð-
urnar í merki Tvíburanna
benda til þess að þú munir
kunna bezt við þig í umhverfi
bóka og mennta.
Annað atriði við stjörnusjá
þína er staða margra pláneta
í sjötta húsi, sem bendir til
þess að þú sért starfsöm mjög.
Þessar afstöður benda einnig
til þess, að þú sért talsvert
glöggskyggn og þessi hæfileiki
kemur þér oft að gagni. Hins
vegar fylgir sá böggull
skammrifi, að fólk með þessa
afstöðu er oft gagnrýnið, sér-
staklega á aðra. Það verður
oft óhamingjusamt ef föt
þess eru ekki í tipp topp
standi eins og sagt er og get-
ur smá misfella varpað
skugga á allan daginn. Þessi
glöggskyggni og árátta til að
bæta allt upp, sem aflaga fer,
veldur því að undir þessum
áhrifum eru mjög margir
læknar og hjúkrunarkonur
fæddar. Einnig fylgir þessum
afstöðum oft óþarfa áhyggj-
ur út af heilsufarinu, þó eng-
in ástæða sé raunverulega
fyrir þessum ótta. Hins vegar
benda afstöðurnar hjá þér til
að viss tímabil séu nokkuð
næm, en svo virðist sem and-
stæður í þessum efnum verði
ríkjandi í lífi þínu.
Um ferðalög er það segja
að svo virðist sem þau eigi
ekki eftir að liggja mikið fyr-
ir þér.
Nú í ár mun þér gefast
talsvert girnilegt tækifæri í
ástamálunum, en ég mundi
ekki ráðleggja þér að taka
þeim. Hins vegar virðist mér
árið 1965 vera tilvalið og þá
sérstaklega miðhluti ársins.
FÁLKINN
33