Fálkinn - 30.05.1962, Qupperneq 35
er koinin í
verzlanir
SKJÓLFATAGERÐIN H.F.
Kvenþjóðin
Frh. af bls. 16
ið varlega, því pimpsteinninn
getur sært hörundið. Þegar
fæturnir hafa verið þvegnir
er borið krem á þá.
Feitir öklar geta átt rætur
sínar að rekja til offitu, en
einnig til kulda, vegna þess
að vefirnir í leðurhúðinni
reyna í kulda að verja sig með
þeirri fitu, sem þeir eru um-
luktir. Það hindrar eðlilega
þlóðrás og oft líka blárauðir.
öklar og oft líka blárauðir.
Hvor sem orsökin er, koma
víxlböð með heitu og köldu
vatni kvölds og morgna að
miklu gagni, því að þau auka
blóðrásina. Auk þess er nudd
gott, fótaleikfimi á morgnana,
halda fótunum upp í loftið
og snúa fótblöðunum til skipt-
is til hægri og vinstri, fram
og til baka, og að lokum hjóla
af krafti út í loftið.
Hafið einnig nál. 20 cm
hærra undir við fótagaflinn,
það bætir mikið.
Hveitibrau&slengja
2—3 cm upp á langhliðarnar.
Sett í smurt málmpappírsmót,
bakað á plötu við 250°, þar til
lengjan er fallega gulbrún.
Álegginu raðað á eins og
myndin sýnir.
Kryddsíldin skorin smátt,
eggin söxuð, laukurinn skor-
inn smátt, látinn malla í
smjörinu 3—4 mínútur. Síld-
inni og eggjunum hrært sam-
an við. Örlitlum rjóma hrært
saman við. Setjið þetta ann-
arsvegar á lengjuna.
Smjörlíkið brætt, hveitinu
hrært saman við og örlitlu
karry ef vill. Þynnt út með
mjólkinni. Jafningurinn soð-
inn 3—5 mínútur. Rækjunum
hrært saman við. Geymið
nokkrar til að skreyta með.
Kryddað með salti og pipar.
Hellið þessum jafningi með-
fram hinni hlið lengjunnar,
skreytið með rækjum.
Sneiðið niður tómatana,
Raðaðí miðjuna til skiptis með
ostbita. Steikt í ofni við 275°,
þar til brauðið er fallega
brúnt.
Borið fram heitt sem for-
réttur eða með kaffi í staðinn
fyrir smurt brauð.
Hrútsmerkið (21. marz—20. apríl).
Þet.ta verður vika mikilla möguleika og fagurra
fyrirheita. Ekki hvað sízt á rómantíska sviðinu gefast
yður góð tækifæri. Sýnið umburðarlyndi gagnvart
mönnum sem þér umgangist daglega og ekki hafa
verið jafn lánsamir í lífinu og þér.
Nautsmerldð (21. apríl—20. maí).
Þér hafið náð merkum áfanga 1 máli sem þér hafið
lengi barizt fyrir með oddi og egg. Þér bjuggust við
að ná takmarkinu strax, en þér skuluð sýna þolinmæði.
Margir voru þeir, sem bjuggust við ósigri yðar í
þessu máli.
Tvíburamerkið (21. maí—21. júní).
Þetta verður góð, en ákaflega erilsöm vika. Varast
skuluð þér ónærgætni í tali. Slíkt getur skapað yður
óþarflega óvild og erfiðleika í starfi. Aðgát skal höfð
í nærveru sálar, eins og þar stendur.
fírabbamerkið (22. júní—22. júlí).
Ef til vill hljómar það dálítið kynlega, að þér eigið
á hættu að allt snúist yður í óhag, en samt. mun það
verða yður til mikils frama. Annars er útlit fyrir,
að þér eigið notalega daga í vændum. Rómantík mun
verða mikil í vikunni.
Ljónsmerkið (23. júli—23. ágúst).
Þessi vika verður full af gleði og ánægju, ef þér
komið fram af þeirri hæversku og yndisþokka, sem
þér hafið sýnt hingað til. Þér munuð fá óvænta heim-
sókn af gömlum vini.
JómfrúarmerJcið (24. ágúst—23. september).
Þér getið hjálpað ákveðinni persónu, sem hefur
orðið fyrir óverðskulduðum árásum af illgjörnu fólki.
Einkum skuluð þér reyna að hjálpa henni siðferðis-
lega. Happatala vikunnar verður 7.
Vogarskálarmerkið (24. september—23. október).
Nýlega hafið þér kynnzt manni, sem þér skuluð
gæta fyllstu varúðar í umgengni við. Persóna þessi
lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Þér ættuð
að kappkosta að vinna sem mest. og láta ástamálin
sitja á hakanum í bili.
SporðdreJcamerkið (24. olctóber—22. nóvember).
Ef þér viljið forðast deilur og rifrildi, þá skuluð
þér ekki skipta yður af því sem yður kemur ekki
við. Þér fáið bara óþökk fyrir afskiptasemina, þótt
t.ilgangur yðar hafi verið sá einn að koma til hjálpar.
Bogamannsmerkið (23. nóvember—21. desember).
Þér skuluð ekki spenna bogann of hátt, jafnvel þótt
þér hafið bæði nægan metnað og gáfur til að ná settu
marki. Það sakar nefnilega aldrei að fara sér hægt
í byrjun. Fimmtudagurinn verður hagstæður.
Steingeitarmerkið (22. desember—20. janúar).
Þér ætt.uð að reyna að komast að raun um hvers
konar tilfinningar þér alið í brjósti með yður til
ákveðinnar persónu, sem þér hafið ekki þekkt lengi.
Látið ekki hugmyndaflugið hlaupa með yður í gönur
í starfi yöar.
Vatnsberamerkið (21. janúar—19. febrúar).
Þér hafið nýlega fengið vandasamt verk að vinna
og þér eruð í megnustu vandræðum með að leysa það
af hendi. Þér munuð þrátt. fyrir allt vinna þetta verk
með prýði, ef þér takið á öllu sem þér eigið til.
Fiskamerkið (20. febrúar—20. marz).
Þér eruð með miklar ráðagerðir varðandi framtíð-
ina og flestar eru þær langt frá því að vera fjarri
raunveruleikanum. Ástamálin eru að komast í gott
lag og ekki spillir að fjárhagurinn er með bezta móti.
FÁLKINN
35