Fálkinn - 11.07.1962, Qupperneq 27
JJueir
réttLv'
úr
epluwi
Ljúffeng eplakaka.
200 g. hveiti.
2 tsk lyftiduft.
125 g. smjörlíki.
125 g. sykur.
2 egg.
2—3 msk. mjólk.
Rifið hýði af sítrónu.
y2 kg. epli.
Flórsykur.
Smjörlíki og sykur hrært létt og
ijóst, eggjunum hrært saman. Hveiti
)g lyftidufti sáldrað út í, hrært saman
við ásamt mjólkinni og rifna sítrónu-
hýðinu. Sett í vel smurð hringmót jafn-
ið deigið vel að ofan. Þvoið og flysjið
eplin, skerið þau í stóra búta eða helm-
ing og kljúfið þau, eins og myndin sýn-
ir. Raðið ofan á deigin, án þess að þau
snerti brúnir mótsins.
Bakað við jafnan hita nál. 190° í 45
mínútur. Flórsykri stráð ofan á meðan
kakan er volg. Látin kólna dálítið í
mótinu.
Ömmu eplakaka.
% kg. epli.
V\ hveitibrauð, dagsgamalt.
100 g. sykur
100 g. smjör.
50 g. möndlur.
Þeyttur rjómi.
Eplin flysjuð, kjarnahúsin tekin úr.
Skerið eplin í kringlóttar sneiðar, sem
*S' A <4*
<e
, .(m vsð
látnar eru skerast í smurðu eldföstu
móti. Hveitibrauðið rifið á grófu rif-
járni, dreift yfir eplin. Sykur stráð yfir,
bræddu smjörinu hellt yfir. Möndlurn-
ar saxaðar, raðað ofan á. Kakan bökuð
í nál. 20 mínútur. Borin fram volg með
þeyttum rjóma.
Kanel-eplahringir.
3—4 epli.
Kanel, sykur.
Smjör.
Eplin flysjuð, kjarnahúsin tekin úr.
Skorin í sneiðar, sem vellt er upp úr
kanelsykri. Steiktar í smjöri á pönnu,
þar til eplin eru meyr. Borið fram með
þeyttum rjóma og meiri kanelsykri ef
vill.
Efri mynd: Ömmu-eplakakan, sem er
ágæiis ábætisréttur. Neðri myndin er
af ljúffengri eplaköku, sem alltaf er
vinsæl með kaffinu.
Œal arlararéttip
Kabarbari með marengs.
% kg. rabarbari.
lVz dl. sykur.
Marengs: 2 eggjahvítur.
5 msk. sykur.
■••■■■• * ■ ■*■■'-••)
Útbúið eins og í uppskriftinni á und-
an. Þeytið eggjahvíturnar meðan ra-
barbarinn er í ofninum; blandið sykr-
ínum vailega saman við. Þekið rabar-
barann með eggjahvítunum. Sett inn í
ofninn á ný nál. 10 mínútur eða þar
til marengsinn er ljósbrúnn. Borið fram
með vanillusósu. Frh. á bls. 32
FALKINN
27