Fálkinn - 25.09.1963, Síða 16
Gamla myndin var tekin, þegar byltingin mikla var að hefjast í samgöngu-
málum okkar íslendinga: Bílarnir voru að byrja að flytjast til Iandsins.
Landslagið, sem myndin er tekin í, minnir satt að segja talsvert á myndir
úr fjallaferðum nútímans, þar sem stórir og sterklegir „fjallabílar“ fara lítt
troðnar slóðir. Þó er þessi mynd tekin, þar sem nú er Kleppsvegurinn í
Reykjavík. Við stýrið situr maður að nafni Gunnar Gunnarsson, en við hlið
hans eigandi bílsins, Jónatan Þorsteinsson. Eins og hin myndin, sem tekin
er úr efstu hæð stigahúss nýrrar „blokkar“ við Kleppsvegin, hefur margt
breytzt. Við sjáum stórhýsi Kassagerðarinnar og Tollvörugeymslunnar, en
á milli þeirra sést, fyrir enda götunnar, kletturinn gamli, sem enn er ó-
breyttur, eins og Viðey og Esjan.
Reykjavík
fyrr
og nú
IV
16
FALKINN