Fálkinn - 25.09.1963, Blaðsíða 23
KVENÞJÖÐIN
Ritstjöri Kristjana Steingrínisdóttir
Húsmæðrakennari.
llaiiaiiabrauð Eaanda boniiiin
Þekið nokkrar hveitibrauðsneiðar með banana-
sneiðum, stráið dálitlu af kanel ofan á. Setjið
því næst litla smjörbita hér og þar yfir brauð-
sneiðarnar og steikið þær í vel heitum ofni í
nokkrar mínútur. Gott er og hollt að bera
hunang með þessum brauðsneiðum er þó alls
ekki nauðsynlegt.
■
Banaiiamóákaka
100 g smjörlíki
125 g sykur
1 egg '
2 bananar
200 g hveiti
ögn af salti
lVt tsk lyftiduft
125 g rúsínur.
Smjörlíki og sykur hrært létt og ljóst, egginu
hrært saman við. Bananarnir marðir með gaffli,
hveiti og lyftidufti sáldrað í skál. Hrærið hVeiti-
blöndunni • og banönunum til skiftis í deigið,
hrært vel í á milli. Að lokum er rúsínunum
hrært saman við. Deigið sett í vel smurt mót,
bakað.við 175° í tæpa klukkustund. Kakan látin
kólria dálítið í mótinu áður en henni er hvolft
á grind.
Kaka þessi er skorin í sneiðar, smurð með
smjöri.
■
■ :■ v
L|úffeiigt grœnmetiíSisalat
Skerið hvítkál í mjóar ræmur, rífið gulrætur gróft, skerið epli í jafna,
smáa bita, skerið grænan pipar í lengjur. Veltið þessu öllu í sósu sem búin
er til úr 3 hlutum afmatarolíu, 2 hlutum sítrónusafa, kryddað með salti
og pipar. Salatið skreytt með tómötum.
Biiið til snyrtileg horn á borðdiikinn
1. Merkið fyrir breiddinni á faldinum með þræðingu, fylgið þræði. Merkið
á sama hátt fyrir innafbrotinu. Klippið yzta hornið af, eins og hvíta
strikið á myndinni sýnir.
2. Brjótið upp á hornið að innri merkingunni.
3. Brjótið upp innafbrotið, fylgið ytri þræðingunni,
4. Að lokum er sjálfur faldurinn brotinn inn af, fylgið þá innri þræðing-
unni. Kastið saman hornið í höndunum, áður en faldað er.
FÁLKINN
23