Fálkinn - 25.09.1963, Side 25
N
A >»1
Drake glotti. „Væri það nú ekki skáld-
legt réttlæti, Perry, ef þessi kvenmaður
hefur auglýst eftir tvífara sínum til að
koma sér úr klípu og hún yrði að greiða
það með því að láta hana hafa helming-
inn af fimmtíu milljón dollara arfi?“
Síminni hringdi. Della Street tók
hann upp og sagði: „Halló.“ Hún lagði
höndina yfir talpípuna og sagði: „Þétta
er Dorrie Ambler.“
Mason bandaði hendinni. „Taktu hitt
tækið, Páll.“
Mason sagði: „Sælar fröken Ambler.“
„Ó, herra Mason,“ sagði hún og það
var geðshræring í röddinni. „Gætuð þér
komið og talað við mig í íbúðinni
minni?“
„Af hverju komið þér ekki hingað?“
spurði Mason.
„Ég er undir eftirliti. Ég er króuð
inni. Það eru menn — maður úti á gang-
inum að skjótast ýmist inn í eða út úr
kústaskápnum. Út um gluggann get ég
séð annan mann, sem hefur auga með
bílnum mínum.“
„Þá það,“ sagði Mason, „það sannar
að lögreglan er búin að hafa upp á yður
og þér verðið bráðum teknar föst fyrir
að aka á mann og forða yður af slys-
staðnum.“
„Aka á mann?“ sagði hún.
„Já, einmitt. Það er það, sem gerðist
J þann sjötta september.
„Og eruð þér að segja að það sé það,
sem verið er að reyna að koma á mig?“
spurði hún með hita í röddinni.
„Verið nú rólegar," sagði Mason.
„Þessir lögreglumenn gera yður ekki
j. neitt, en þeir verða þarna kyrrir þangað
t til þeir eru vissir um að þér eruð inni
’ cg þá spyrja þeir yður um þetta bílslys."
„Og hvað get ég sagt þeim?“
„Segið þeim að þér hafið verið heima
sjötta september og ekkert annað. Jæja,
©g hvar er bíllinn yðar?“
^ I „Við gangstéttina hérna fyrir
; framan.“
Framh. á bls. 36.
f-ALKINN