Fálkinn - 09.12.1963, Blaðsíða 13
Kom blessuð, Ijóssins liátíð, — helgi þín
minn hug og vilja göfgi, vermi, fylli,
svo máttug verði’ og lieilög hugsun mín
og hörpu mína Drottins andi stilli.
Ó, gef mér kraft að græða fáein sár,
og gjörðu bjart og hreint í sálu minni, &
svo verði’ hún kristallstær sem barnsins tát
og tindri’ í henni Ijómi’ af hátign þinni.
Ó, send mér, Guð minn, geislabrot í nótt,
er glóir stjarna þín í bláu heiði,
sem gefur barni veiku viljaþrótt
að vinna þér á hverju æviskeiði.
Ó, gef mér barnsins glaðan jólahug,
við geisla ljósadýrðar vært er sofnar.
Þá hefur sál mín sig til þín á flug,
og sérhvert ský á himni mínurn rofnar.
Guðm. Guömundsson,
Mig vantar styrk í kærleik, kraft í trú
og kristilega auðmýkt barnsins góða.
En veikleik minn og breyzkleik þekkir þú
og þrá míns hjarta, bænarmálið hljóða.
FÁLKINN