Fálkinn - 09.12.1963, Blaðsíða 48
Velklædd kona vandar val sitt. Hún kys ser Deztu og
pægilegustu föt, yzt sem innst.
Það er þýðingarmikið að velja sér hentug og þægileg
slankbelti og brjósthaldara.
SLANKBELTIÐ MODEL 700 gerir vöxtinn mjúkan og
spengilegan. Fáanleg með og án renniláss í 3 stærðum í
hvítu.
BRJÓSTHALDARI MODEL 235. Með eða án hlíra-
banda í A og B skálastærðum bæði í hvítu og svörtu.
í Fást í vefnaðarvöruverzlunumum land allt.
Heildsala: DAVÍÐ S. JÓNSSON & CO., H.F. Reykjavík.
LADY
H.F.
lífstykkjaverksmiðja,
Laugavegi 26 — Sími 10-11-5.
HVAÐ GERIST Í N/ESTU VIKU?
HrútsmerlciÖ (21. marz—20. apríl).
Þessi vika sem nú fer í hönd kann að verða
með nokkuð öðrum hætti en þér b.iuggust við og
ekki er útilokað að þér verðið fyrir talsverðum
vonbrigðum. Verið samt ekki of svartsýnir.
Nautsmerkiö (21. apríl—21. maí).
Nú er um að gera að taka þeim tækifærum
sem gefast og nýta þau á sem beztan _og hag-
kvæmastan hátt. Þér skuluð þó ekki flýta yður
of mikið því ekkert liggur á.
TvíburamerkiÖ (22. maí—21. júni).
Ýmsir erfiðleikar kunna að verða þess valdandi
að skapið verði með erfiðara móti þessa vikuna.
Þér ættuö þó að gæta þess að láta ekki bera of
mikið á þessu.
KrabbamerkiÖ (22. júní—22. júlí).
Þessi vika sem nú fer i hönd verður róleg og
án allra stór atburða. Þér skuluð því nota hana
vel til hvíldar og vera vel undir stór átök búnir.
Ljónsmerkiö (23. júlí—23. áaúst).
Nú er um að gera að fara varlega i sakirnar
og ætla sér ekki of mikið þvi að það gæti eyði-
lagt fyrir yður gullin tækifæri. Verið þessa minn-
ugir.
Jómfrúarmerkiö (21,. ánúst—23. sept.).
Þetta verður mjög rómantísk vika og þér mun-
uð lengi minnast hennar. Föstudagur og laugar-
dagur verða sérstaklega ánæg.iulegir og sunnu-
dagurinn mun koma yður mjög á óvart.
VonarskálamerkiÖ (21,. sept.—23. okt.).
Vogun vinnur vogun tapar og það ættuð þér
að hafa hugfast í þessari viku. Ef yður tekst vel
áformið sem þér hafið í huga þá eigið þér góða
daga framundan en ef það mistekst, nú þá er að
byr.ia að nýju.
Sporödrekamerkiö (21,. okt.—22. növ.).
1 þesari viku munu skiptast á skin og skúrir.
Fyrri hlutinn verður mjög þægilegur og hætt er
við að seinni hlutinn verði nokkuð erfiður að
ekki sé meira sagt.
Boc/amannsmerkiö (23. növ.—21. de:iJ.
Þér ættuð að leggja allt kapp á það I þessari
viku að koma reglu á fjárhaginn ef þess er kostur.
Seinni hiuta vikunnar ættuð þér að dveljast að
mestu heima við.
Steinaeitarmerkiö (22. des.—20. janúar).
Farið gætilega í öllum viðkvæmum málum
þessa vikuna og forðist að flækja yður í annarra
mál. Seinni hluti vikunnar kann að reynast nokk-
uð viðburðarikur og koma þar ýmis mál til
sögunnar.
Vatnsberamerkiö (21. ianúar—18. febrúar).
Þessa dagana er allt fremur rólegt hjá yður
og þér ættuð bess vegna að njóta hvíldarinnar
svo sem frekast er kostur. Svo kann að fara að
yður sinnist verulega við einn vin yðar og það
gæti haft ýmsa erfiðleika í för með sér.
FiskamerkiÖ (19. febrúar—20. marz).
Þessi vika sem nú fer i hönd verður með ýms-
um hætti skemmtileg en með nokkuð öðrum
hætli en þér b.iuggust við. Þér ættuð einkum
fyrir hluta hennar að dvelja sem mest helma við.
i8 FÁLKINN