Fálkinn


Fálkinn - 20.12.1965, Qupperneq 9

Fálkinn - 20.12.1965, Qupperneq 9
„Síðastliðið sumar — seint — hitti Julie mann. Eg veit ekki hvar, eða hvort Angela vissi um það. Ég .. .“ Hann hætti aft- ur. „Það var dálítið einkennilegt,“ sagði hann. Svo stóð hann upp. „Ef þið hafið ekki borðað, þá þætti mér mjög gaman að bjóða ykkur að borða hér út á Walpole." Þau horfðu undrandi á hann. „Þetta er góður matstaður — og rólegur.“ „En ætlaðir þú ekki að fara að segja okkur frá þessum manni?“ spurði John. „Ég hef ekki gleymt honum,“ sagði Higby. „Ég sá Julie með þessum manni á Walpole-veitingahúsinu síðastliðinn október." Það var ekki langt að fara, og staðurinn var lítill og þægi- lega dimmur. Þegar þau komu var hann tómur. „Hér er yfirleitt troðfullt um helgar,“ sagði prestur, „en það er ekki óalgengt, að hann sé tómur í miðri viku. Ég hafði þaldið, að hann væri það einnig þetta kvöld í október. En þá gá ég þetta par — þarna.“ Hann benti á lítið afskekkt borð innst. „Maðurinn var að tala við stúlkuna,“ sagði hann. „Þvi næst stóð hún upp. Svo komu þau að borðinu til mín. Mað- urinn var ámóta á hæð og þú, John. Hann var í áberandi sportjakka. Stúlkan sagðist vera Julie Titus. Hún spurði hvort ég myndi eftir sér. Hún virtist vera að flýta sér — al- veg eins og hún hefði ákveðið að gera eitthvað og væri um- íram um að ljúka því af sem fyrst. Þú veizt, hvað ég meina, góða mín?“ Þetta var sagt til Barböru. „Jú,“ sagði Barbara. , „Hún bauð gott kvöld, og bunaði svo út úr sér, að hana langaði til að kynna vin sinn fyrir mér. Hún sagði: „Þetta er John Hayward, vinur minn.“ Þau fylgdu hr. Higby aftur heim á prestssetrið, og hann sagðist vera leiður yfir, að þetta hefði endað svona, og John sagðist vera viss um, að hann hefði gert allt, sem hægt væri. Þau óku í áttina til New York. Hann stýrði umhugsi;nar- laust. Ég er eins og brúða á streng — hugsaði hann með sér — óhæfur til að taka ákvörðun. Ég er yfirbugaður. Efinn var kominn aftur. Barbara sat við hlið hans. Samt er ég einn, hugsaði hann. Svona var þetta einu sinni — fyrir löngu. (Ég lifi í miðju einmanaleikans — nafn mitt er kallað allt í kringum mig. „Heyrir þú til mín, John Hayward?“ Ég svara: „Já, ég heyri til þín, læknir, en þeir heyra ekki til mín, þegar ég tala. fig • • •“) „John,“ sagði Barbara, „hlustaðu á mig, John.“ („Hayward,” segir læknirinn, „hlustaðu á mig. Heyrir þú hvað ég er að segja?“ „Já, ég heyri hvað þú segir,“ sagði John Hayward. „Heyrir þú ekki þegar ég svara, læknir?“ En læknirinn var of langt í burtu, og heyrði ekki hvað hann sagði. „Þetta lagast allt,“ sagði læknirinn. „Þetta er eingöngu tímaspursmál — það er allt og sumt.“). „John,“ sagði Barbara. „Komdu út úr þessum hugarheimi." „Það er allt í lagi með mig,“ sagði hann. „Það var sprengju- kúla.“ ;Hún sat þögul um stund. Þögn hennar var þrungin. Hún var að koma hugsunum sínum í réttan farveg. Svo sagði hún: „John, þessi maður, - sem var með Julie .. .“ hún hikaði. „Higby er alveg viss um, að það varst ekki þú.“ „Hann getur ekki svarið, að það var ekki ég. Ef hann yrði kallaður sem vitni — talaði við lögregluna — þá yrði hann að segja, að stúlkan hefði kynnt þennan mann sem John Hayward. Hann yrði að segja, að hann hefði verið í sams konar áberandi sportjakka — sams konar og lögreglan mun segjast hafa fundið í íbúðinni minni.“ „Stöðvaðu bílinn einhvers staðar,“ sagði Barbara, „við get- um ekki talað saman svona.“ Hann stoppaði við afleggjara. Hann snéri sér að Barböru. „Þessi maður,“ sagði hún, „byrjaði þetta allt saman. Hann neyddi Julie til að kynna sig fyrir hr. Higby sem John Hay- ward. Það var hluti af áætluninni.“ „Já, ég hugsa það, Barbara. Ég man ekki eftir að 'haía komið inn á þetta veitingahús fyrr.“ HEILDSÖLUBIRGÐIR KRISTJÁN Ó. SKAGFJÖRÐ H.F. SÍMI 24120 ioxsi l roiini\A bílal(‘i^a ma^niisar skipholíi 21 símar: 211510-2111(5 Haukur (fudntuhíf'óócn HEIIVI ASÍMl 21037 Framh. í næsta blaði. FALKINN 9

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.