Fálkinn - 20.12.1965, Page 35
töflu. Svo sagöi hún við Sam: „Það
kemur gestur og drekkur te hjá mér í
dag.“
„Einmitt það,“ sagði hann, „já, ég
verð heima.“ Svo hélt hann áfram að
lesa í bókinni. Það gat gert mann sturl-
aðan.
„Hvenær ferðu aftur að vinna?“
neyddi hún sjálfa sig til að spyrja.
„Það færðu að vita þegar að því
kemur. . . En þú skalt ekki ímynda
þér, að ég ætli að þræla fyrir þessum
fimmtíu pundum handa honum frænda
þínum nei, fari það kolbrennt! Það
skaltu sjálf fá að paufast við — þótt
þú verðir tíu ár að því.“
„Þú... þú ómennið þitt!“ hvíslaði
hún. En hún fann aftur kvíðatilfinn-
inguna í maganum. Sam hélt áfram að
lesa.
Það kom aðeins ein lest eftir hádegið.
Hún hefði getað farið þangað. En hún
varð kyrr heima. Hún vildi ekki eiga á
hættu að Ted hliðraði sér hjá að koma
með henni heim til Sams. Suðan var að
koma upp á vatninu á eldavélinni, þeg-
ar kvað við í dyrahamrinum. Sam hélt
áfram að lesa; hann var enn í gömlu
buxunum og með uppbrettar skyrtu-
ermar. Hún lét aftur eldhúsdyrnar að
baki sér: hún var með hjartað í kverk-
unum. Á dyraþrepinu stóð Ted með
litla tösku, nýjan, mjúkan hatt og regn-
frakkann snyrtilega samanbrotinn á
handleggnum. Hann var hreint og beint
álitlegur, hugsaði hún með sér, og mað-
ur, sem ferðast langar leiðir til þess að
viðhalda sumarleyfiskunningsskap, hlýt-
ur að hafa einhvern áhuga. Sjálfstraust
hennar jókst. „Sæl, Megan — ég þori
að veðja að þú áttir ekki von á að sjá
mig framar,“ sagði hann kokhraustur.
Hún brosti blítt með grátviprur í
vörunum og reyndi að leika hina undir-
okuðu konu, sem grátbiður um hjálp.
Hún þrýsti handlegg hans, kjökraði
lágt við öxl hans og lét hann finna
ilminn úr hári sínu, sem hún hafði
þvegið um morguninn. Hann sagði hálf
hikandi: „Jæja, hvað er að? Svona,
svona. Hefurðu saknað mín?“
„Það hefur gerzt dálítið," hvíslaði
hún. „Maðurinn minn er hérna.“
Hann stirðnaði upp. „En þú sagðir
mér að hann væri dáinn.“
„Það var rangt. Honum var bjargað
þegar hann hafði verið grafinn í nám-
unni í heila viku... Ó, Ted, hann hef-
ur verið svo vondur við mig. Ég hef
verið að því kominn að sturlast. Ég
þoli þetta ekki lengur, nei ég þoli það
ekki.“ Hún ríghélt í handlegginn á
honum.
Kona höfðar sjaldan árangurslaust til
verndaraeðlisins í karlmanninum. Enda
þótt Ted væri enn töluvert ruglaður í
ríminu, kom nú einbeittnissvipur á
andlit hans. Hann hafði verið í Ind-
landi og leit á sig sem heimsmann.
Ljótt og harðneskjulegt námahéraðið
með dimmleitum fjöllunum hafði verkað
ömurlega á hann og hér stóð hann nú
frammi fyrir fíngerðri kvenveru, sem
á raunalegan hátt var hlekkjuð við
þennan stað fyrir tilstilli einhvers
ruddamennis, sem fór illa með hana.
Samt lét hann sér nægja að muldra
gætilega: „Viltu þá að ég tali við hann?“
„Já,“ hvíslaði hún ofurlágt.
„Og ætlarðu svo að strjúka með
mér?“ spurði hann og fór hálfgert um
hann.
Hún lagði aftur höfuðið að öxl hans,
full trúnaðartrausts og sagði svo lágt
að varla heyrðist: „Já.“
Sam leit upp úr bókinni, þegar þau
komu inn. Það var lagt á borð, hreint
og snyrtilega, þótt ekki færi mikið fyr-
ir meðlætinu. Sam sýndist grófgerður
og verkamannslegur við hliðina á Ted,
sem var hár og grannur. Glóð hafði
skyndilega kviknað í augum Megans
og hún sagði við mann sinn sem kink-
aði stuttaralega kolli til gestsins: „Þetta
er kunningi minn, sem ég hitti í Weston-
super-Mare.“
„Friðill þinn áttu við,“ hreytti hann
út úr sér og sendi Ted grimmilegt
augnatillit.
„Viltu ekki fá þér sæti, Ted,“ sagði
hún og lét sem hún heyrði ekki athuga-
semd Sams. Síðan fór hún að hella
vatni í ketilinn.
„Heyrðu, bíddu aðeins við!“ hrópaði
Sam. „Friðlar minnar konu setjast ekki
við tedrykkju í mínu húsi.“
„Láttu ekki eins og kjáni,“ sagði hún
hikandi og hélt áfram að hella upp á.
Hann lyfti öðrum fætinum og spark-
aði tekatlinum úr höndunum á henni.
Hann mölbrotnaði á eldavélinni. Megan
fór að vola; ef til vill hafði hún brennzt
á höndunum. „Heyrðu mig nú!“ varð
Ted að orði. Sam hallaði sér aftur á
bak og horfði beint á hann. ..Hvað hafið
þér hugsað yður að gera í þessu máli?“
spurði hann; en röddin var stillileg og
hæversk.
Framh. í næsta blaði.
MYNDAÞRAUTm
Þessi myndaþraut er
fyrir börn og unglinga
15 ára og yngri. Mynd-
irnar virðast vera eins
í fljótu bragði, en ef
þið athugið neðri
myndina betur þá eig-
ið þið að finna 10
skekkjur á henni. Þið
skuluð merkja staðina
með hringjum eða
krossum og klippa
myndirnar síðan út,
senda okkur úrlausn-
ina ásamt nafni og
heimilisfangi. Bókaút-
gáfa Æskunnar ætlar
að veita 10 bækur í
verðlaun og þið veljið
sjálf þá bók sem ykk-
ur langar að eignazt.
Bækurnar, sem þið
getið valið um, heita:
Stína,
David Copperfield,
Blómarós,
Anna Lísa 13 ára,
Hart á móti hörðu,
Leitin að loftstein-
inuin,
Á flótta með bangsa.
Lausnir skulu hafa
borizt fyrir 10. janúar.
Utanáskriftin er:
Vikublaðið FÁLKINN,
pósthólf 1411,
Reykjavík.
Merkt: myndaþraut.
FALKINN
35