Fálkinn - 17.01.1966, Page 4
09O§
>••9
Bob Dylan heitir ungur söngvari,
sem gengur vægast sagt mjög undar-
fega til fara, ef miðað er við þau
fjárráð, sem hann hefur — og þó.
Kannski er ástæðan einmitt þess
vegna, en B^b gerir meira en að
syngja Hann semur lög og eitt þeirra
heitir Mr. Tambourine man, en það
eru hinir bandarísku THE BYRDS,
sem sungu lagið inn á plötu og náði
það fljótlega miklum vinsældum í
U.S.A. og Bretlandi, og einnig hér
heima eins og þið vitið. En þetta
var jafnframt þeirra fyrsta plata.
Nú hafa Bandaríkjamenn loksins
eignast hljómsveit, sem stenzt
samanburð við þær vinsælustu í
Bretlandi. Það er engin tilviljun, að
þeir völdu Iag eftir þjóðlagasöngvar-
ann, Bob Dylan, því sjálfir höfðu
The Byrds farið út í þjóðlagaflutn-
ing, en þá voru þeir algerlegá
óþekktir, og þeir hafa látið hafa
eftir sér, að það gæti vel verið, að
þeir tækju þjóðlagatónlistina aftur
á dagskrá.
CHKIS
'ANDREWS
Það kannast flestir við lögin Girl don’t come og Long live love,
því Shandie Shaw hefur gert þessi lög geysivinsæl, en sá sem
samdi lögin heitir Chris Andrews, en hann hefur einnig samið
lög fyrir Adam Fait eins og t. d. „The first time“. En það hafði
alltaf verið draumur Chris að syngja sjálfur eitthvað af þeim lögum,
sem hann hefur samið og draumurinn rættigt heldur betur, þegar
hann söng Yesterday man inn á hljómplötu, því það náði geysileg-
um vinsældum í Bretlandi og ekki hafa vinsældir þess orðið minni
hér, ef marka má vinsældalistann í Lögum unga fólksins í desember.
f þessum mánuði voru sex lög á TOP 20 listanum i Bretlandi eftir
Chris og þar af tvö sungin af honum sjálfum,
Chris segist geta jafnt samið beat- og jazzlög. Hann bindur
sig ekki við neina sérstaka tegund tónlistar, en nú sem stendur
hefur hann brennandi áhuga á að koma saman söngleik, en enn
sem komið er hefur hann ekki ákveðið hvhða saga verði fyrir
valinu.
Chris Andrews er 23 ára, giftur og á tvö börn. Þegar hann
leyfði Shandie Shaw að heyra Yesterday man fyrst, þá hló hún
mikið, en taldi litlar líkur á því, að það næði vinsældum, en
raunin varð önnur.
JIM McGUINN
SÓLÓGÍTAR
Hljómsveití rstjóri.
Fyrir tveim árum ferð-
aðist hann með Tríói
Chad Mitchell’s og eitt
ár með Bobby Darin.
GENE CLARK
MUNNHARPA
Hann er sá eini, sem
hefur staðið fyrir
hljómsveit, en Clark
er aðalsöngvari The
Byrds.
MIKE CLARK
TROMMUR
Það er lítið um hann
að segja, nema það, að
hann lék í skólahljóm-
sveit áður.
4
FÁLK.INN
DAVID CROSBY
RSTHMAGÍTAR
Hann byrjaði fyrir 5
árum síðan að spila og
syngja opinberlega.
CHRIS HILLMAN
BASSAGÍTAR
Hann hefur brenn-
andi áhuga á tónlist
og er einlægur aðdá-
andi Bob Dvlan’s.